Fréttir
Afgerandi meirihluti sagði nei í NA – 61,2%
30.08.2026 kl. 08:00
Kjósendur bíða í röð eftir því að komast í kjörklefann í Verkmenntaskólanum í gær. Mynd: Þorgeir Baldursson
Nær öruggt er að þjóðin hafni því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði teknir upp að ný. Þegar aðeins er beðið er eftir síðustu tölum úr Suðvesturkjördæmi er staðan þannig að 52,5% hafa sagt nei en 47,5% sagt já. Nei segja 99.037 en 89.459 hafa segt já. Mjótt er því á munum en litlar sem engar líkur á að það breytist.
- Niðurstaðan í Norðausturkjördæmi var afgerandi: 61,2% (15.822) sögðu nei – höfnuðu viðræðum, en 38,8% (10.022) sögðu já.
Þegar fyrstu tölur voru birtar í Norðausturkjördæmi klukkan 23.30 í gærkvöldi voru nei-in strax töluvert fleiri; 56% nei en 44% já. Þá höfðu verið talin 10.000 atkvæði. Þá höfðu ekki borist kjörseðlar austan af landi.