Fara í efni
Fréttir

Markviss samvinna fyrir allan landshlutann

Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Noðurlands og Eyþór Björnsson, framkvæmdastjóri SSNE.

Gengið hefur verið frá samningi milli Markaðsstofu Norðurlands (MN), Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE) um rekstur Áfangastaðastofu, sem svo er kölluð.

Þar með lýkur ferli sem hefur staðið yfir formlega allt frá árinu 2017 þegar hafinn var undirbúningur að gerð fyrstu áfangastaðaáætlana svæðanna. Þó má segja að ferlið hafi í raun hafist árið 2015 þegar Markaðsstofur landshlutanna settu fram stefnu um að fá skýrari tengingu við stjórnvöld ferðamála, skilgreind hlutverk og öfluga fjármögnun til lengri tíma, að því er segir í tilkynningu frá MN.

„Áfangastaðastofur eru samstarfsvettvangur sveitarfélaga, ríkis og atvinnugreinarinnar og er markmiðið með stofnun þeirra að efla stoðkerfi ferðaþjónustunnar og stuðla að jákvæðum framgangi hennar. Meðal hlutverka eru gerð áfangastaðáætlana, að koma að gerð stefnumótunar í ferðaþjónustu, þarfagreining rannsókna, vöruþróun og nýsköpun, mat á fræðsluþörf auk þess að sinna svæðisbundinni markaðssetningu og vera grunneining í stoðkerfi ferðamála í landshlutunum.“

Markaðsstofa Norðurlands hefur verið með samning við Ferðamálastofu um stoðkerfi ferðaþjónustu á starfssvæðinu en nú hefur sá samningur verið færður yfir í samning Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, Ferðamálastofu og Landshlutasamtakanna. Samstarf við Íslandsstofu verður einnig eflt í þessu samhengi og gerður sérstakur samningur um markaðssetningarverkefni.

Beint áætlunarflug ein grundvallarforsendan

„Það er mikið fagnaðarefni að samstaða hefur verið á Norðurlandi um að halda áfram úti markvissu starfi fyrir landshlutann í heild sinni undir merkjum Norðurlands eða North Iceland eins og verið hefur frá árinu 2003 þegar Markaðsstofan var stofnuð. Stefna MN verður óbreytt, að aukning verði á vægi ferðaþjónustu allt árið sem tryggi uppbyggingu innviða, greiðar samgöngur, fleiri heilsársstörf og meiri framlegð í greininni. Ein af grundvallarforsendum þess er að beint áætlunarflug hefjist til Norðurlands,“ segir í tilkynningu MN.

„Segja má að verkefnin skiptist í tvær deildir við þessa samninga, annars vegar innviðaþróun og hins vegar markaðssetningu. Ekki er þó um grundvallarbreytingu á verkefnum Markaðsstofunnar að ræða. MN mun áfram vinna þétt með fyrirtækjunum og sveitarfélögunum á svæðinu að framgangi ferðaþjónustunnar og hvetjum ykkur til að vera í sambandi við okkur varðandi öll verkefni eða ef spurningar vakna um þessa nýju samninga um Áfangastaðastofu.“

Smellið hér til að sjá nýjustu áfangastaðaáætlun Norðurlands