Fara í efni
Fréttir

Af hundum og köttum - Stuðningur við Kisukot og hundasvæði

Um helmingur íslenskra heimila halda gæludýr af einhverju tagi, mörg þeirra hunda eða ketti. Gæludýr eru mikilvægur partur af fjölskyldunni og aðstaða og umönnun þeirra eitthvað sem skiptir gæludýraeigendur miklu máli.

Eftir langt ferli innan bæjarkerfisins var þjónustusamningur við Kisukot sem unnið hafði verið að lengi tekin af dagskrá á fundi bæjarráðs síðasta sumar. Það er erfitt að skilja hvers vegna Akureyrarbær hefur ekki fundið leið til að styðja Kisukot, kattaaðstoð á Akureyri, með betri hætti en raun ber vitni. Þar hefur mikilvægt starf verið unnið í fjöldamörg ár, köttum er bjargað, þeim veitt umönnun og fundin ný heimili. Á sama tíma er séð til þess að villiköttum sé fækkað með ábyrgum og mannúðlegum hætti. Þetta eru mikilvæg samfélagsleg verkefni sem bænum ber, lögum samkvæmt, að sinna.

Erfitt hefur reynst að finna viðunandi aðstöðu fyrir starfsemi Kisukots, sem er leitt. Við teljum það væri öllum til hagsbóta ef svo yrði gert og sveitarfélagið ber þar ábyrgð. Sjálfboðaliðar eiga ekki einir að bera uppi verkefni sem þjóna hagsmunum samfélagsins. Það þarf ekki að kosta stórfé að bæta úr. Lausnirnar eru til. Spurningin er hvort viljinn sé fyrir hendi.

Akureyrarbær, með Félagi hundaeigenda á Akureyri, heldur úti tveimur frábærum hundasvæðum, annað er á Blómsturvöllum, aðeins utan við bæjarmörkin, en hitt er við Háskólann á Akureyri. Það styttist í að hundasvæðið við Háskólann þurfi að víkja. Því er brýnt að fundinn verði nýr staður fyrir hundasvæði innan bæjarmarkanna þar sem hundar fá tækifæri til að hittast í frjálsum leik og góðri hreyfingu án taums.

Ég vil að Akureyrarbær geri betur og Vinstri hreyfingin grænt framboð mun leggja áherslu á stuðning við Kisukot og bætta aðstöðu fyrir hundaeigendur.

Harpa Guðbrandsdóttir skipar 9. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Akureyrarbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí