Fara í efni
Fréttir

Ætla að ræða ríkidæmi landsbyggðarinnar

Við Mývatn. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Ríkidæmi landsbyggðarinnar verður í brennidepli á rafrænni ráðstefnu Félags kvenna í atvinnulífinu næsta laugardag, 17. apríl.

  • Hver eru tækifæri landsbyggðarinnar?
  • Hvernig tökumst við á við breyttan veruleika?
  • Hver er vegferð frumkvöðuls, hindranir, árangur og hvert er sunnlenska-módelið?
  • Fjallað verður um sjálfbærni, nýsköpun, úthýsingu starfa, skapandi markaðssetningu, nándina í fjarlægðinni – og hvað svo?

Spurt er, í tilkynningu: Af hverju fækkaði íbúum London um 10% í fyrra? Eru litlir bæir að endurheimta sinn fyrri sjarma?

„Covid hefur sannað að fólk getur sett lífsgæðin í forgang, flutt starfið með sér á sinn drauma búsetustað eða skapað tækifæri hvar sem er á landinu. Íbúum stórborga í Evrópu hefur fækkað undanfarið ár og smærri borgir og bæir hafa endurheimt sinn fyrri sjarma. Ríkidæmi landsbyggðarinnar verður því til umfjöllunar á ráðstefnunni Ný heimssýn á nýjum tímum,“ segir í tilkynningu frá FKA.

„Um ræðir gífurlega mikilvægt byggðamál og tækifæri til að halda landinu í byggð. Til að vel takist til er nauðsynlegt að styrkja samfélög á landsbyggðinni og bjóða upp á öfluga grunnþjónustu fyrir íbúa. Tækifærin á landsbyggðinni eru óteljandi og þurfa störf án staðsetningar þurfa einungis tvennt:

  • Nettengingu
  • Samgöngur

Landsbyggðadeildir Félags kvenna í atvinnulífinu FKA tóku höndum saman og verða með innihaldsríka ráðstefnu þar sem fjallað er um ríkidæmi landsbyggðarinnar. Á ráðstefnunni skautum við yfir sviðið og ræðum tækifæri í takt við þessa nýju heimssýn á nýjum tímum.“

Ráðstefnan verður frá klukkan 13.00 til 17.00 og er öllum opin. Smellið hér til að taka þátt.

Hér er Facebook síða ráðstefnunnar.