Fara í efni
Fréttir

Skógræktarfélagið blæs til sóknar

Styrktarsamningurinn undirritaður í veðurblíðu í Hrafnagilshverfi á sumardaginn fyrsta. Frá vinstri: Pétur Halldórsson varaformaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, Sigríður Hrefna Pálsdóttir formaður Skógræktarfélagsins og Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri félagsins. Ljósmynd: Róbert Finnsson.

Skógræktarfélag Eyfirðinga mun stórauka ræktun, umhirðu og þjónustu við skógarreiti félagsins í Eyjafjarðarsveit í samvinnu við sveitarfélagið, í kjölfar styrktarsamnings sem undirritaður var á sumardaginn fyrsta.

Samningurinn er til tveggja ára og með honum styrkir Eyjafjarðarsveit Skógræktarfélag Eyfirðinga um tvær milljónir króna hvort árið. Sex af ellefu skógarreitum í umsjón félagsins eru innan marka Eyjafjarðarsveitar og sá sjöundi að hálfu leyti. Þar á meðal eru tveir af elstu reitunum, Garðsárreitur og Leyningshólar en fyrstu verkefni félagsins eftir stofnun þess 1930 voru að friða upprunalegar birkileifar á þessum stöðum.

Samningurinn gerir Skógræktarfélaginu kleift að sinna betur umhirðu umræddra skógarreita og vinna með sveitarfélaginu að úrbótum á aðgengi og aðstöðu, segir í tilkynningu. 

Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, og Sigríður Hrefna Pálsdóttir, formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, undirrituðu samninginn í sumarblíðu við Hrafnagilsskóla  sumardaginn fyrsta. Vottar að undirritun voru Pétur Halldórsson, varaformaður SE, og Ingólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri félagsins.

Nánari upplýsingar er að finna í frétt á vefnum www.kjarnaskogur.is