Fara í efni
Fréttir

ADHD: greining, meðferð og lyf bjarga lífum!

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD – athyglisbrest með ofvirkni. ADHD samtökin standa fyrir fjölbreyttum viðburðum til að vekja athygli á málefninu en gera má ráð fyrir að hátt í 20.000 Íslendingar séu með ADHD – greint eða ógreint, börn og fullorðnir.

  • Hvað er ADHD?
  • Athyglisbrestur og ofvirkni, oft kallað ADHD í daglegu tali, er taugaþroskaröskun sem kemur yfirleitt snemma fram eða fyrir sjö ára aldur og getur haft víðtæk áhrif á daglegt líf, nám og félagslega aðlögun. Athyglisbrestur og ofvirkni er algerlega óháð greind. ADHD er alþjóðleg skammstöfun og stendur fyrir „Attention Deficit Hyperactivity Disorder“ eða athyglisbrest og ofvirkni.

Á vef samtakanna segir að í ár verði athyglinni sérstaklega beint að mikilvægi greininga, meðferðar og lyfja fyrir fólk með ADHD og því ófremdarástandi sem í þeim málum ríki hér á landi. Biðtími eftir þessari mikilvægu þjónustu er um tvö ár.

„Þessi langi biðtími eftir greiningum, skortur á meðferðarrúrræðum og gríðarlegir fordómar gagnvart notkun ADHD lyfja skerða lífsgæði þúsunda einstaklinga á degi hverjum og valda þeim og samfélaginu öllu gríðarlegum skaða. Aðgerðarleysi stjórnvalda er í raun óskiljanlegt enda málið grafalvarlegt –  dauðans alvara!“

Til að vekja athygli á ástandinu og auka þekkingu og skilning á mikilvægi greininga, meðferðar og lyfja vegna ADHD hafa ADHD samtökin unnið nokkur kynningarmyndbönd og tekið saman upplýsingar um verndandi áhrif greininga, meðferðar og lyfja fyrir fólk með ADHD og samfélagið í heild.

Smellið hér til að sjá kynningarefnið.

Þú ert númer 1250 í röðinni ... 

Í lok mánaðarins, fimmtudaginn 27. október, standa ADHD samtökin síðan fyrir opnu málþingi undir yfirskriftinni Þú ert númer 1250 i röðinni... Þar verður fjallað um það ástand sem hér ríkir og þær alvarlegu afleiðingar sem ómeðhöndlað ADHD og langir biðlistar hafa fyrir fólk með ADHD og samfélagið allt.

Meðal fyrirlesara verða Haraldur Erlendsson, geðlæknir, Anna Tara Andrésdóttir, doktorsnemi, Elvar Daníelsson, geðlæknir og Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, alþingismaður. Skráning og nánari upplýsingar eru hér á heimasíðu ADHD samtakanna.