Fara í efni
Fréttir

Aðalsteinn prestur við Akureyrarkirkju

Mynd af vef Þjóðkirkjunnar

Séra Aðalsteinn Þorvaldsson hefur verið ráðinn prestur til þjónustu í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Greint er frá ráðningunni á vef Þjóðkirkjunnar.

„Ég hlakka mikið til að koma til þjónustu við söfnuðinn og vinna með prestum og starfsfólki prestakallsins og leggja mitt á vogarskálar þess góða starfs sem nú þegar er fyrir hendi,“ er haft eftir Aðalsteini á vef kirkjunnar. „Ég hef í gegnum tíðina lagt mikla áherslu í barnastarfið í störfum mínum og mun halda því áfram.“

Spurt er : hvernig leggst það í þig og fjölskylduna að flytjast norður?

„Það leggst afar vel í mig og fjölskylduna að flytja til Akureyrar sem er yndislegur bær sem við tengjumst fjölskylduböndum,“ svarar sr. Aðalsteinn. Hann var skipaður sóknarprestur Setbergsprestakalli í Grundarfirði árið 2008 og hefur þjónað þar síðan. Aðalsteinn er fæddur í Reykjavík 5. desember árið 1975, varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1995 og embættispróf úr guðfræðideild Háskóla Íslands tók hann árið 2001.

Á vef kirkjunnar kemur fram að séra Aðalsteinn var félagsmálastjóri Bandalags Íslenskra skáta árin 2006 til 2008 og starfsmaður, leiðbeinandi og stjórnandi hjá skátafélaginu Ægisbúum, Útilífsmiðstöð skáta og Skátasambandi Reykjavíkur árin 2002-2006.

Sr. Aðalsteinn var sjálfboðaliði í Palestínu á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar á árinu 2001 frá mars til júlí.

Á námsárum sínum í Háskólanum starfaði hann við kirkjuvörslu og barnastarf í Neskirkju og var æskulýðsleiðtogi í Seltjarnarneskirkju. Eiginkona hans er Lína Hrönn Þorkelsdóttir, táknmálstúlkur og eiga þau tvær dætur, Kristbjörgu Ástu nemanda við LHÍ og Guðrúnu Ósk nemanda í grunnskóla.