Aðalsteinn Bergdal leikari er látinn
Aðalsteinn Bergdal leikari er látinn, 76 ára gamall, eftir baráttu við krabbamein. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut í gær, fimmtudaginn 28. maí. Fjölskylda Aðalsteins greinir frá andláti hans í tilkynningu.
Aðalsteinn fæddist 1. desember 1949 á Akureyri og hóf leikferil sinn með Leikfélagi Akureyrar árið 1967. Árið 1979 hóf hann störf hjá Leikfélagi Reykjavíkur og starfaði þar og síðar hjá Þjóðleikhúsinu um árabil. Árið 1990 flutti hann á ný norður og lauk leikferlinum hjá Leikfélagi Akureyrar.
Á ríflega 50 ára ferli sínum sem leikari lék hann í vel á annað hundrað sýningum hjá atvinnuleikhúsunum þremur auk þess sem hann leikstýrði mörgum leiksýningum hjá áhugaleikfélögum víðsvegar um landið. Þá talsetti hann fjöldann allan af teiknimyndum, söng inn á hljómplötur og framleiddi barnaefni, m.a. fyrir Ríkisútvarpið.
Aðalsteinn tók þátt í stofnun atvinnuleikhúss Leikfélags Akureyrar í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar en hafði leikið með félaginu frá árinu 1967. „Þá tók hann virkan þátt og var ötull baráttumaður fyrir byggingu Borgarleikhússins og tók ásamt samstarfsfólki sínu hjá Leikfélagi Reykjavíkur þátt í mörgum miðnætursýningum í Austurbæjarbíói og fleiri verkefnum til að safna fyrir byggingu Borgarleikhúss. Hann hlaut heiðursviðurkenningu Menningarsjóðs Akureyrar árið 2022 fyrir fjölbreytt og mikilsvert framlag til menningarlífs á Akureyri. Með Aðalsteini hverfur einnig af sjónarsviðinu hans annað sjálf, trúðurinn Skralli, sem skemmti börnum og fjölskyldum þeirra um land allt frá árinu 1974,“ segir í tilkynningu frá fjölskyldu Aðalsteins.
Aðalsteinn bjó í Hrísey síðustu árin. Hann lætur eftir sig sex börn, 19 barnabörn og 3 langafabörn.

Aðalsteinn Bergdal með búning Skralla trúðs í janúar árið 2025. Aðalsteinn skemmti börnum og fjölskyldum þeirra sem Skralli í hálfa öld. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Í tilkynningu frá fjölskyldu Aðalsteins er fjallað nánar um leikferil hans og störf. Þar segir:
Fyrstu verkefni Aðalsteins á menningarsviðinu voru þegar hann byrjaði á tólfta ári, árið 1960, að spila í hljómsveitum á Akureyri. Þar á meðal voru hljómsveitirnar Bassar og Treflar, en sú síðarnefnda dró nafn sitt af búningi sveitarinnar þar sem langir treflar voru áberandi. Með þessum sveitum og fleirum spilaði hann víða á dansleikjum til sautján ára aldurs, bæði sem söngvari og trommari. Hann gekk til liðs við Karlakór Akureyrar ungur að árum og fór m.a. í fræga Norðurlandaferð með kórnum árið 1966. Árið 1967 vantaði ungan mann, sem gæti sungið, til að koma fram í leikritinu Sláturhúsið hraðar hendur, sem setja átti upp í Sjallanum á Akureyri. Leitað var til karlakórsins og var Aðalsteinn valinn til þátttöku í uppfærslunni. Þar hófst leikferill hans sem spannað síðan rúmlega 50 ár.
Hann hefur leikið í vel á annað hundrað leiksýningum bæði norðan og sunnan heiða, en hann var um árabil á föstum samningi við atvinnuleikhúsin Leikfélag Akureyrar, Leikfélag Reykjavíkur og Þjóðleikhúsið. Þá lék hann einnig með Alþýðuleikhúsinu og Garðaleikhúsinu o.fl. Þegar hann bjó í Reykjavík var hann í ýmsum hlutverkum í barnatíma sjónvarpsins um margra ára skeið, ásamt störfum sínum í leikhúsunum. Þá lék hann einnig í mörgum útvarpsleikritum og las framhaldssögur í Ríkisútvarpið. Auk þess lék hann í nokkrum sjónvarpsleikritum og kvikmyndum. Þá talsetti hann á íslensku yfir 600 teiknimyndir.
Árið 1974 varð til, fyrir slysni eftir því sem hann sagði sjálfur, trúðurinn Skralli sem skemmti börnum og fjölskyldum þeirra um land allt áratugum saman. Í þau 50 ár sem trúðurinn Skralli kom fram skemmti hann á vel á annað þúsund skemmtunum um land allt. Aðalsteinn vann sjónvarpsþætti um Skralla trúð og margvíslegt annað barnaefni, fyrir sjónvarp og útvarp og samdi einnig og flutti barnaefni sem tekið var upp á hljómplötur. Þá samdi hann einnig um tíu leikverk sem flest hafa verið sett á svið.
Frá árinu 1977 leikstýrði hann samtals 24 leikritum hjá áhugaleikfélögum um land allt.
Í gegnum feril sinn skemmti hann einnig með söng og gamanmálum á skemmtunum víðsvegar um land og á erlendum vettvangi, þar á meðal á Spáni þar sem hann starfaði um skeið sem fararstjóri.