Fara í efni
Fréttir

Áberandi fjölgun rjúpna á Norðurlandi

Rjúpnatalningum á vegum Náttúrufræðistofnunar vorið 2026 er lokið. Rjúpur voru taldar á 21 talningarsniði í öllum landshlutum og sýna niðurstöðurnar nokkrar breytingar á fjölda rjúpna samanborið við árið 2025. Myndin sýnir rjúpnapar á Norðausturlandi. Ljósmynd af vef Náttúrufræðistofnunar - Ólafur K. Nielsen

Áberandi aukning varð í fjölda rjúpna á Norðurlandi vestra, Norðausturlandi,  Suðurlandi og Austurlandi samkvæmt nýjustu rjúpnatalningu Náttúrufræðistofnunar. Á Vestfjörðum og Vesturlandi var fjöldinn hins vegar svipaður og síðustu ár.

Á nokkrum svæðum mældist mesti fjöldi rjúpna frá upphafi talninga, meðal annars á Skaga á Norðurlandi vestra og á Bakkafirði, Tjörnesi og í Kelduhverfi á Norðausturlandi.

Í heildina sáust um 7% fleiri rjúpur en árið áður. Þetta kemur fram í frétt á vef Náttúrufræðistofnunar. Miðað við stofnvísitölur síðustu 20 ára er rjúpnastofninn við meðaltal á Vestur- og Suðurlandi en yfir meðaltali á Norðurlandi vestra, Norðausturlandi, Vestfjörðum og Austurlandi. Líklegt er að mikill þéttleiki rjúpna á sumum svæðum tengist fækkun fálka.

Stofninn nær hámarki í ár

Skipulagðar rjúpnatalningar hófust 1963 og þær sýna að stofninn var í hámarki um allt land vorið 1966. Enginn merkjanlegur toppur var á 8. áratugnum en aftur voru greinilegir toppar á 9. og 10. áratug síðustu aldar. Þetta kemur fram í minnisblaði um rjúpnatalninguna í vor.

Í kjölfar friðunar rjúpunnar 2003 og 2004 óx stofninn og náði hámarki á Norðurlandi eystra vorið 2005 og síðan aftur árin 2010, 2015, 2019 og, að því er virðist, árið 2026, skv. minnisblaðinu.

„Stofnbreytingar í öðrum landshlutum hafa verið óreglulegri. Þessar breytingar á lengd stofnsveiflunnar sýna að rótækar breytingar hafa orðið á stofnvistfræði rjúpunnar eftir 2003 og stofnsveiflan, eins og hún var áður þekkt, virðist ekki lengur vera til staðar, hvað sem síðar verður,“ segir í minnisblaðinu.