Fara í efni
Fréttir

70 ára afmælishátíð Krabbameinsfélagsins

Í tilefni 70 ára afmælis Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis bíður félagið upp á dagskrá og léttar veitingar í dag, mánudaginn 21. nóvember. Viðburðurinn er opinn öllum og verður haldinn í menningarhúsinu Hofi, kl. 17:00-19:00.

Dagskráin:

  • Kynning á starfsemi Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis – Selma Sigurjónsdóttir formaður félagsins
  • Þögull morðingi – Nick Cariglia sérfræðingur í meltingarsjúkdómum
  • Reynslusaga – Hildur Eir Bolladóttir
  • Afhending á styrk frá Dekurdögum 2022 – Inga Vestmann og Vilborg Jóhannsdóttir
  • Skemmtiatriði – Jónína Björt og Ívar Helgason syngja fyrir gesti
  • Veitingar – Pinnamatur frá Garún & afmæliskaka frá Bakarínu við Brúna

„Við hvetjum sem flesta til að mæta og njóta dagsins með okkur,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Hér er hægt að sjá viðburðinn á Facebook.