Fara í efni
Fréttir

50 ára ösp brotnaði í hvassviðrinu

Stór, hálfrar aldar gömul ösp brotnaði í garði við Suðurbyggð í hvassviðrinu snemma í morgun og féll yfir á lóð nágrannans.  Einhverjar skemmdur urðu á þakrennu, kerru og ef til vill fleiru en snúrustaur bjargaði því að stór bolur félli á bíl við á stæði við húsið. 

Fleiri tré munu hafa brotnað í bænum en ekki er vitað til þess að verulegar skemmdir hafi orðið.