Fara í efni
Fréttir

43 sjúkrarúm til Sierra Leone frá Akureyri

Rúmin frá Sjúkrahúsinu á Akureyri komin á leiðarenda í Sierra Leone. Ljósmyndir: Aurora velgerðarsjóðurinn.

Nýverið afhenti Aurora velgerðasjóður 43 sjúkrarúm til sjúkrahúsa í Sierra Leone. Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) gaf rúmin en tveimur árum áður höfðu 20 rúm frá stofnuninni farið sömu leið í samstarfi við Aurora.

Samskip gáfu flutning rúmanna í bæði skiptin en það gekk ekki þrautalaust að koma þeim á leiðarenda að þessu sinni vegna Covid. Rúmunum 43 var komið fyrir í gámi á Akureyri snemma árs 2020 en hann komst ekki lengra en til Rotterdam því landamærum Sierra Leone var lokað eftir að heimsfaraldurinn braust út.

Það var ekki fyrr en í febrúar á þessu ári að Samskipum tókst að flytja rúmin til Freetown, höfuðborgar Sierra Leone. Auriora leysti gáminn úr tolli og greiddi allan annan kostnað við flutninginn og við að dreifa þeim á sjúkrastofnanir í landinu.

Stærstur hluti rúmanna fór til Princess Christain Maternity Hospital (PCMH), sem er helsta fæðingarsjúkrahúsið í Sierra Leone, staðsett í austurhluta höfuðborgarinnar. Þá fóru fáein rúm einnig til Brama Community Hospital, en sú sjúkrastofnun er töluvert fyrir utan Freetown. „Aurora hefur unnið náið með samfélaginu í Brama Town, ekki síst vefurum þorpsins sem vinna með bambusþræði. Í þorpinu er einungis einn starfandi læknir og nokkrir hjúkrunarfræðingar. Áður hafði sjúkrahúsið engin rúm heldur voru þar einungis nokkrar dýnur og einfaldir beddar. Starfsfólkið var því afar þakklátt að fá nothæf sjúkrarúm til að sinna sjúklingum sínum í,“ segir í tilkynning frá sjóðnum.

„Nokkur rúm fóru einnig til UBC Mattru Hospital í Mattru Jong, sem er í suðurhluta Sierra Leone og þjónar gríðarlega stóru svæði. Héraðið varð virkilega illa úti þegar borgarastríðið í landinu stóð sem hæst og var sjúkrahúsið þá jafnað við jörðu. Hafist var handa við endurbyggingu strax í kjölfar stríðsloka árið 2001. Inniviði í sjúkrahúsið vantar þó enn sárlega og braust því út mikill fögnuður þegar rúmin bárust.

Að lokum fóru rúm einnig til Allen Town Community Hospital, sem er staðsettur í austasta hluta Freetown. Þar er rekin mjög lítil sjúkrastofnun af samfélaginu, með nokkra hjúkrunarfræðinga. Læknar koma í heimsókn öðru hvoru. Þetta er þó helsta fæðingardeild svæðisins og eina stofnunin sem sinnir mæðravernd. Voru rúmin ákaflega kærkomin enda búnaður sjúkrastofnunarinnar ákaflega takmarkaður.“

Aurora velgerðasjóður, sem settur var á laggirnar að frumkvæði hjónanna Ingibjargar Kristjánsdóttur og Ólafs Ólafssonar snemma árs 2007, hefur allar götur síðan starfrækt þróunarsamvinnuverkefni í Sierra Leone. Samhliða eigin verkefnum hefur sjóðurinn átt í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki sem hafa viljað styðja við samfélagsleg verkefni í landinu.