Fara í efni
Fréttir

3.000 fundir og 3 milljónir til samfélagsverkefna

Fjóla Stefánsdóttir, forstöðumaður dvalarheimilisins Grenilundar á Grenivík, tekur á móti styrk í dag. Oddfellow félagarnir eru Lýður Hákonarson, til vinstri, og Einar Hjartarson.

Oddfellowstúkan Sjöfn á Akureyri afhenti í dag átta styrki, samtals að fjárhæð 3 milljónir króna. Fyrr í vetur var haldinn þrjú þúsundasti fundurinn í sögu stúkunnar og voru styrkveitingarnar ákveðnar af því tilefni.

Styrkirnir voru afhentir í Regluheimili Oddfellow við Sjafnarstíg.

Eftirtaldir aðilar hluti styrk:

  • Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis
  • Sjúkrahúsið á Akureyri (Kristnesspítali)
  • Grófin – Geðrækt
  • Aflið
  • Dvalarheimilið Grenilundur á Grenivík
  • Samhyggð
  • Rauði krossinn
  • ABC barnahjálp

Á þessu ári nema styrkveitingar Sjafnar á sjöttu milljón króna, að því er segir í tilkynningu. 

Á Akureyri eru starfandi fimm Oddfellowstúkur og er Sjöfn þeirra elst, stofnuð árið 1917. Í síðustu viku styrktu stúkurnar á Akureyri Velferðarsjóð Eyjafjarðar um samtals 4,2 milljónir króna.

Frá samkomunni þar sem styrkirnir voru afhentir í dag.

Karl Eskil Pálsson yfirmeistari Sjafnar, lengst til hægri, ræðir við nokkra þeirra sem tóku við styrkjum í dag.