265 útskrifast frá Sjúkraflutningaskólanum
Sjúkraflutningaskólinn útskrifaði nýverið 265 nemendur við hátíðlega athöfn í Flugsafni Íslands. Ingimar Eydal skólastjóri sagði í ávarpi sínu við skólaslitin árið hafa verið viðburðaríkt og starfið gengið vonum framar, en alls luku tæplega 700 nemendur hvers kyns námskeiðum hjá skólanum á liðnu ári.
Hópurinn sem útskrifaðist að þessu sinni er stór og fjölbreyttur:
- 92 nemendur luku grunnnámi sjúkraflutningamanna (EMT). Námið er 260 klukkustundir, þar af 56 tímar í starfsþjálfun á sjúkrabílum og bráðamóttöku. Alls voru átta grunnnámskeið haldin víðs vegar um landið.
- 32 nemendur luku framhaldsnámi í sjúkraflutningum (AEMT).
- 141 vettvangsliði (EMR) lauk 40 klukkustunda námi. Þetta nám er ætlað lögreglu, slökkviliði, björgunarsveitum og öðrum hópum sem eru líklegir til að vera fyrstir á vettvang slysa.
Ingimar nefndi vettvangsliða sérstaklega í ræðu sinni; þeir skipi æ stærri sess í viðbragðsþjónustunni og séu mikilvæg viðbót. Nú fái t.d. allir lögreglunemar menntun sem vettvangsliðar, sem sé mikil framför í öryggismálum þar sem þeir eru oft fyrstir á vettvang slysa og veikinda.
Auk grunn- og framhaldsnáms sinnir Sjúkraflutningaskólinn umfangsmikilli endurmenntun. Á síðasta ári voru til dæmis haldin 25 endurmenntunarnámskeið með samtals 298 nemendum. Að öllu meðtöldu sóttu 682 nemendur 62 námskeið hjá skólanum á árinu 2025 en árið áður var heildarfjöldi þátttakenda 572. Ingimar sagði mikið hafa verið að gera hjá skólanum, sem væri þó ekki stór stofnun. Fastir starfsmenn eru aðeins tveir, auk umsjónarmanns búnaðar í hlutastarfi, en um 100 leiðbeinendur komu að kennslu á síðasta ári.
Geðheilsa ungs fólks og þjónusta við aldraða
Í ávarpinu vék Ingimar einnig að þeim erfiðu verkefnum sem sjúkraflutningafólk stendur frammi fyrir. Hann sagði banaslys og óvænt dauðsföll ávallt vera meðal erfiðustu verkefnanna, en jafnframt væru mörg alvarleg tilvik sem sjaldnar rötuðu í fréttir.
Hann nefndi sérstaklega tilfelli þar sem ungt fólk reynir að stytta sér aldur og sagði áfengis- og fíkniefnaneyslu oft koma þar við sögu. Samfélagið þyrfti að leita allra leiða til að sporna við slíkum vanda, hlúa betur að ungu fólki, bjóða því tækifæri og tryggja betri aðgang að geðheilbrigðisþjónustu.
Þá minnti hann útskriftarnema einnig á mikilvægi þess að sinna öldruðum af virðingu og nærgætni. Hækkandi aldur þjóðarinnar gerði það að verkum að þjónusta við aldraða yrði æ stærri hluti af starfi sjúkraflutningafólks. „Sinnum alltaf öldruðum eins og við værum að sinna okkar nánasta fólki, foreldrum eða afa og ömmu okkar. Enginn biður um að verða minna sjálfbjarga og vera öðrum háður,“ sagði Ingimar.
Sjúkraflutningar hluti heilbrigðisþjónustunnar
Útskriftin fór fram í Flugsafni Íslands eins og áður sagði og notaði Ingimar staðinn til að minna á sögu sjúkraflugs, björgunarstarfs og þá frumkvöðla sem mótað hafa þjónustu sem nú þykir sjálfsögð.
Hann sagði mikilvægt að líta á sjúkraflutninga sem hluta heilbrigðisþjónustunnar. Í skipulagi heilbrigðisþjónustu mætti ekki gleyma því hvernig koma ætti sjúkum og slösuðum á öruggan hátt í viðeigandi meðferð, samhliða þeirri meðferð sem veitt væri fyrir flutning og á meðan á honum stæði. Í því samhengi nefndi hann meðal annars samgöngur og innviði, sjúkraflug, mikilvægi flugvalla og flugvallarþjónustu, staðsetningu þyrlupalla, aðkomu sjúkrabíla og öruggar samgönguleiðir að sjúkrahúsum.
Að lokum hvatti Ingimar útskriftarnema til að sinna öllum skjólstæðingum eins og þeir væru að sinna sínum nánustu. Sjúkraflutningafólk væri öryggisnet sem fólk treysti á þegar veikindi eða slys bæri að höndum. „Mikilvægast í okkar þjónustu er að láta okkur annt um okkar skjólstæðinga! Það á að vera okkar markmið,“ sagði Ingimar Eydal skólastjóri.