Fara í efni
Fréttir

20 milljónir á árinu til markaðssetningar

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra og Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar.

Markaðsstofa Norðurlands fær 20 milljónir króna frá ríkinu á þessu ári til markaðssetningar Norðurlands í tengslum við Akureyrarflugvöll og Austurbrú fær sömu upphæð fyrir Austurland og Egilsstaðaflugvöll. Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, undirritaði í vikunni  samning þar að lútandi.  

„Þetta samkomulag þýðir aukna markaðssókn fyrir Austurland og Norðurland. Við viljum stuðla að millilandaflugi þannig þessir flugvellir nýtist. Um leið eykst þjónusta við íbúa á svæðunum og við fáum inn ferðamenn,“ segir Lilja Alfreðsdóttir við vefmiðilinn Austurfrétt, eftir að skrifað var undir samninginn í flugturninum á Egilsstöðum á mánudaginn.

Beint flug skiptir miklu máli

„Markaðsstofan hefur undanfarin ár haldið utan um flugklasaverkefnið Air 66N, sem hefur reynst mjög vel. Breska ferðaskrifstofan Super Break stóð fyrir beinum ferðum frá Bretlandi til Akureyrar tvö ár í röð og hollenska ferðaskrifstofan Voigt Travel var byrjuð á slíkum ferðum frá Amsterdam fyrir Covid heimsfaraldurinn og hefur haldið þeim áfram á þessu ári. Þá var nýlega tilkynnt um stofnun flugfélagsins Niceair á Akureyri, sem mun styðja enn frekar við markaðssetningu á Norðurlandi og Akureyrarflugvelli sem valmöguleika í millilandaflugi til og frá Íslandi,“ segir í tilkynningunni frá Markaðsstofu Norðurlands.

„Við sjáum að á sumrin fara 50% þeirra ferðamanna sem koma til landsins norður en 15% á veturna. Á sumrin hefur verið beint flug þangað. Við vitum að í nútímasamfélagi skiptir beint flug miklu máli,“ sagði menningar- og viðskiptaráðherra við Austurfrétt.

„Það er mikið fagnaðarefni að ráðherra skuli styðja vel við bakið okkur í markaðssetningu á Norður- og Austurlandi sem áfangastöðum fyrir beint flug. Nú stefnir í það að flugvöllurinn á Akureyri verði tilbúinn fyrir aukna umferð og þurfum við að geta fylgt því eftir af krafti. Ferðaþjónustan og sveitarfélögin fyrir norðan hafa lagt mikla vinnu í að ná árangri í þessu en það er nauðsynlegt að stjórnvöld standi með okkur af fullum þunga og sýni þannig viljann til að opna nýjar gáttir til landsins og ná árangri á alþjóðlegum markaði,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.