100 metra fræhöll rís í Vaglaskógi
Nýtt og stórt gróðurhús er nú í uppsetningu í Vaglaskógi í Fnjóskadal. Húsið verður 1.636 fermetrar að stærð og er ætlað að auka verulega framleiðslu á fræi lerkiblendingsins Hryms auk þess að skapa aukin tækifæri til trjákynbóta.
Í frétt á vefsíðu Lands og skógar kemur fram að fræframleiðsla hefur verið stunduð í Vaglaskógi um áratugaskeið og þar er fyrir um þúsund fermetra gróðurhús sem hefur einkum verið nýtt til framleiðslu á Hrymsfræi. Hrymur er blendingur úrvalstrjáa af rússalerki og evrópulerki og hefur reynst vel við íslenskar aðstæður.
Nýja húsið verður tæplega 100 metra langt og 16,5 metra breitt. Það verður byggt úr stálgrind og klætt með 16 millimetra einangrandi pólíkarbónat-plasti. Sjálfvirk loftræsting og hitastýring verður í húsinu og hönnun þess tekur sérstaklega mið af miklum snjóþyngslum sem geta orðið í Vaglaskógi.

Starfsmenn eistneska fyrirtækisins Topgreen annast uppsetningu hússins. Mynd: Land og skógur.
Eistneska fyrirtækið Topgreen sér um uppsetningu hússins. Fimm starfsmenn fyrirtækisins hafa unnið við verkið undanfarnar vikur og stefnt er að því að uppsetningu utanhúss ljúki núna um miðjan september. Eftir er þá ýmis vinna innan hússins. Tilboð Topgreen var metið hagstæðast og gerði það jafnframt kleift að byggja stærra hús en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir.
Á næstu mánuðum verða ágræddar lerkiplöntur með sprotum af úrvalstrjám settar í nýja húsið. Einnig stendur til að endurnýja elstu trén í eldra húsinu og huga að umbótum í framleiðslu Hrymsfræs.