1. MAÍ – TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN!
Upp er runninn 1. maí – alþjóðlegur baráttudagur verkafólks. Akureyri.net óskar vinnandi fólki nær og fjær til hamingju með daginn!
„Í ár fylkjum við liði undir kjörorðunum Styrkur okkar er velferð allra og hvetjum við félagsfólk til þess að sýna samstöðu með því að fjölmenna í kröfugöngu á Akureyri og taka þátt í hátíðardagskrá á Akureyri og í Fjallabyggð,“ segir á vef verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju í tilefni dagsins.
Kröfuganga leggur af stað frá Alþýðuhúsinu á Akureyri kl. 14:00 og ástæða er til að vekja athygli á því að hátíðardagskrá verður á Ráðhústorgi í dag, eins og gjarnan á árum áður, en ekki í menningarhúsinu Hofi eins og mörg síðustu ár.
Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri
- 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
- 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá á Ráðhústorgi að lokinni kröfugöngu
- Fundarstjóri er Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
- Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna – Erla Rán Kjartansdóttir, formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra
- Hátíðarræða – Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
- Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum Ljóska í gegn
- Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr leikritinu Ronja ræningjadóttir
Grillaðar pylsur og skátatívolí að dagskrá lokinni.
Á síðasta ári fögnuðu verkalýðsfélögin 100 ára afmæli 1. maí hátíðarhalda við Eyjafjörð. Minjasafnið á Akureyri skyggndist þá í verkalýðssögu bæjarins fyrir akureyri.net í pistlaröðinni Söfnin okkar. Vert er að vekja athygli lesenda aftur á þeim fróðlegu skrifum:

Frá upphafi kröfugöngunnar á Akureyri á síðasta ári. Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðja, fremst í flokki. Mynd: Skapti Hallgrímsson