1-1-2 dagurinn: Líf og fjör á Glerártorgi
Þau sem leið eiga um Glerártorg þessa dagana þurfa ekki að óttast þó að þau sjái björgunarsveitarmann hanga í línu neðan úr loftinu eða viðbragðsaðila í fullum skrúða inni í verslunarmiðstöðinni. Um er að ræða gínur á sýningu sem hitar upp fyrir 1-1-2 daginn sem haldinn verður hátíðlegur á Glerártorgi á morgun, sunnudag, milli kl. 12 og 15 . Margs konar kynningar og sýningar verða í boði og meðal annars mun björgunarþyrla lenda við Nettó.
1-1-2 dagurinn á Glerártorgi er haldinn í samstarfi við viðbragðsaðila á Akureyri en á deginum gefst gestum tækifæri til að kynnast störfum viðbragðsaðila. Það eru Slökkvilið Akureyrar, Lögreglan á Norðurlandi eystra, Sjúkrahúsið á Akureyri, Rauði krossinn við Eyjafjörð, Súlur björgunarsveitin á Akureyri og Neyðarlínan sem taka þátt í deginum en allir viðbragðsaðilar verða með kynningarbása inni í verslunarmiðstöðinni. Þá geta gestir meðal annars skoðað snjósleða, björgunarbúnað og ýmis tæki sem verða til sýnis.

Ekki amalegt að geta skoðað og prófað alls konar græjur sem notaðar eru til björgunarstarfa. Mynd: Hilmar Friðjónsson.
Veitt verða verðlaun í eldvarnagetraun og skyndihjálparmanneskjur ársins fá viðurkenningu. Þá verður leitarhundur á svæðinu og börnum gefst kostur á að skoða lögreglubíl og fara inn í slökkviliðsbíl fyrir utan verslunarmiðstöðina. Klukkan 12 mun þyrla Landhelgisgæslunnar lenda á bílastæðinu við verslun Nettó.
Yngstu gestirnir fá einnig sitt því Björnis Brunabangsi mætir á staðinn kl. 12 til þess að fræða börn um eldvarnir á skemmtilegan hátt. Þá verður boðið upp á kandífloss og skemmtilega stemningu fyrir alla fjölskylduna.
Dagskráin á Glerártorgi á morgun, sunnudag:
- Kl. 12:00 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir á bílastæðinu fyrir framan Nettó og verður með gest um borð.
- Kl. 12:00 Björnis brunabangsi mætir á svæðið.
- Kl. 14:00 Rauði Kross Íslands veitir skyndihjálparmanneskjum ársins verðlaun.
- Kl. 14:00 Veitt verða verðlaun í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Markmiðið með viðburðinum er fyrst og fremst að efla þekkingu almennings á störfum viðbragðsaðila og mikilvægi sjálfboðaliðastarfs. í ár eru 30 ár síðan samræmt neyðarsímanúmer var tekið upp á Íslandi og fyrsta símtalinu var svarað hjá 112 þann 1. janúar 1996. Það er því mikilvægt að minna á þetta númer af því þetta er eina númerið sem landsmenn þurfa að þekkja í neyð.