Fara í efni
Vigfús Sigurgeirsson

Þristurinn var notaður við margvísleg störf

SÖFNIN OKKAR – 146

Frá Flugsafninu á Akureyri
_ _ _

Akureyri.net heldur áfram að opna dyr safnanna í bænum lesendum til fróðleiks og skemmtunar. Það er gert vikulega, á fimmtudögum.


Safngripur vikunnar, eða öllu heldur sýningargripur, er Þristurinn, Douglas C-47A (DC-3) flugvél sem ber einkennisstafina TF-NPK.

Flugvélin var smíðuð árið 1943 og kom til Íslands á vegum Bandaríkjahers sama ár. Flugvélin var hér notuð við margvísleg flutningastörf á vegum hersins, m.a. hafa fundist gögn sem sýna það að vélin var notuð til að fljúga með hermenn sem hér voru staðsettir í skemmtiferðir til Akureyrar og var þá lent á Melgerðismelum. Einnig var vélin notuð til að flytja háttsetta herforingja milli Keflavíkur og Reykjavíkur.

Þristurinn á Reykjavíkurflugvelli.

Flugfélag Íslands keypti flugvélina af herliði Bandaríkjamanna á Íslandi árið 1946 og fékk hún þá einkennisstafina TF-ISH. Örn Ó. Johnson flugmaður og forstjóri Flugfélags Íslands um langa hríð var fyrstur Íslendinga til að fljúga Þristinum þegar hann fór í æfingaflug með flugmanni Bandaríkjahers í lok júlí 1946.

Þegar TF-ISH var keypt var orðin veruleg þörf fyrir landflugvél af þessari stærð einkum á flugleiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar. Fyrir voru í flugflota Flugfélagsins Catalina flugbáturinn TF-ISP, de Havilland Rapite TF-ISM og Noorduyn Norseman TF-ISV.

Flugmennirnir Arngrímur B. Jóhannsson og Hallgrímur Jónsson flugu báðir Þristinum en hér eru þeir komnir í önnur jarðbundnari störf honum tengdum!

Í fyrstu var TF-ISH með innréttingu, þ.e. með málmstólum meðfram hliðunum beggja megin, en haustið 1947 var ný 21 sæta farþegainnrétting sett í vélina í Bretlandi. Í nóvember það sama ár gerði Flugfélag Íslands opinbert val á félagsmerki og jafnframt tilkynnti félagið að flugvélar þess yrðu skírðar hestanöfnum sem öll hefð endinguna „faxi“. Hlaut TF-ISH nafnið „Gljáfaxi“.

Sem fyrsti þristur Flugfélagsins vann Gljáfaxi brautryðjendastarf á flugleiðum félagsins innanlands og var vélin t.d. notuð við að kanna lendingastaði víðsvegar um landið.

Þann 1. nóvember árið 1948 henti það óhapp að Gljáfaxi rann út af flugbraut á Keflavíkurflugvelli í hálku og stórskemmdist. Ákveðið var að viðgert skyldi fara fram hérlendis og er það fyrsta stórviðgerð sem framkvæmd er á Íslandi á svo stórri flugvél, en henni stjórnaði Brandur Tómasson flugvirki.

Þristurinn á Melgerðismelum. Mynd: Eðvarð Sigurgeirsson

Árið 1965 fékk Flugfélag Íslands sína fyrstu Fokker F27 Friendship flugvél, en þessi flugvélategund var valin arftaki Douglas DC-3 á innanlandsleiðum félagsins. Eftir því sem F27 vélunum fjölgaði dró smám saman úr notkun þristanna í innanlandsflugi, en eftir 1967 voru aðeins tveir þeirra eftir, Gljáfaxi og Gunnfaxi.

Gljáfaxi var mikið notaður í Grænlandsflugi á þessum árum og þá með skíðabúnaði. Árið 1972 ákvað stjórn Flugfélags Íslands, að frumkvæði Arnar Ó. Johnson, að gefa Landgræðslu Ríkissins Gljáfaxa til landgræðslustarfa.

Hin rausnarlega gjöf Flugfélagsins kom í kjölfar samþykktar félagsfundar Félags íslenskra atvinnuflugmanna frá því haustið 1971, um að bjóða fram flugstörf í þágu landgræðslu landsins án endurgjalds. Flutningsmenn tillögunnar voru flugstjórarnir Dagfinnur Stefánsson og Skúli Br. Steinsþórsson.

Þristurinn hefur verið gangsettur síðustu tvö sumur. Flugvirkinn Hannes Thorarensen og Karl Hjartarson þristavinur hafa séð um það og notið aðstoðar hollvina Flugsafnsins. Frá vinstri: Finnur Helgason, Guðmundur Hjartarson, Hörður Ingólfsson, Hannes Thorarensen, Karl Hjartarson og Ásgrímur Karlsson.

Breytingar voru gerðar á vélinni á verkstæði Flugfélagsins og í hana settur búnaður til áburðardreifingar að nýsjálenskri fyrirmynd. Þessu verki stjórnaði Gunnar Valgeirsson flugvirki, en hann hafði farið sérstaklega til Nýja-Sjálands að kynna sér hvernig breytingunum væri háttað. Þann 12. maí árið 1973 var vélin skráð á nafn Landgræðslu ríkisins og hlaut einkennisstafina TF-NPK, en stafirnir eru efnafræðileg tákn þeirra áburðartegunda sem mest eru notaðar; N = köfnunarefni, P = fosfór og K = kalium. Eða eins og umhverfisráðherra orðaði svo skemmtilega í ávarpi sínu í Flugsafninu í gær: Stafirnir voru sóttir beint í áburðarpokann!

Mynd: Pétur P. Johnson

Gljáfaxi fær nýtt nafn

Vélin var skírð Páll Sveinsson í höfuðið á fyrrverandi landgræðslustjóra, en hann var mikill áhugamaður um notkun flugvéla við landgræðslustörf. Með tilkomu þessarar flugvélar margfaldaðist afkastageta Landgræðslunnar því flugvélin gat borið 4 tonn af áburði í hverri ferð.

Á þeim 30 árum sem Páll Sveinsson var í notkun Landgræðslunnar var vélinni flogið alls um 4733 flugtíma og um 35200 tonnum af fræum og áburði dreift í 8848 flugferðum. Heildarflugtími flugvélarinnar frá upphafi eru um 27000 klukkustundir. Frá upphafi var TF-NPK að mestu leyti flogið af atvinnuflugmönnum sem lögðu fram vinnu sína án endurgjalds og eiga þeir miklar þakkir skildar fyrir ómetanlegt framlag sitt.

Þristurinn á Akureyrarflugvelli 1. október 2013 þegar haldið var upp á 70 ára afmæli vélarinnar. Mynd: Pétur P. Johnson

Í umsjón Þristavinafélagsins

Eftir að hætt var að nota flugvélina til landgræðsluverkefna hefur hún verið í umsjá Þristavinafélagsins, sem er áhugamannafélag um varðveislu Þristsins, þó að eignarhaldið hafi áfram verið hjá Landgræðslu ríkisins og síðar Þristasjóði. Flugvélinni var flogið reglulega til haustsins 2019 af ýmsum tilefnum og tók þátt í flughátíðum víða um land.

Frá árinu 2008 hefur Þristurinn verið á Flugsafni Íslands til sýningar. Afar gott samstarf hefur verið milli Þristavina og starfsfólks og hollvina Flugsafnsins, og afar vel verið hugsað um vélina.

Viljayfirlýsingin undirrituð í Flugsafni Íslands í gær. Við borðið sitja, frá vinstri: Steinunn María Sveinsdóttir, safnstjóri Flugsafns Íslands, Ágúst Sigurðsson, forstöðumaður Lands og skógar, Jóhann Páll Jóhannesson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, Sveinn Runólfsson fyrrverandi Landgræðslustjóri og formaður Þristasjóðs og Tómas Dagur Helgason formaður Þristavinafélagsins. Myndasmiðurinn í dyrum Þristsins er Hörður Geirsson, formaður stjórnar Flugsafns Íslands. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Viljayfirlýsing undirrituð um framtíðarvarðveislu Þristsins

Í gær, 29. október, var stórt skref stigið til að tryggja framtíðarvarðveislu Þristsins þegar undirrituð var viljayfirlýsing þess efnis að Flugsafninu verði afhent flugvélin til eignar og varðveislu. Við tekur nú stjórnsýslulegt ferli sem stefnt er að klárist í lok árs og verður þá safninu afhent flugvélin formlega. Þannig mun hún eiga öruggt skjól í Flugsafni Íslands um aldur og ævi.

  • Texti: Steinunn María Sveinsdóttir og Pétur P. Johnson

Þristurinn í Múlakoti. Hestamaðurinn er Friðrik Pálsson. Mynd: Pétur P. Johnson

Þristurinn tekinn inn til vetrardvalar í september síðastliðnum. Þórir Gunnarsson og Sigurður Ásgeirsson standa sem einn maður og stýra aðgerðum.

Þristavinurinn Ásgrímur Karlsson hefur séð um að halda Þristinum hreinum og fínum um langt skeið.

Nokkrir gestanna í afmælishófinu þegar því var fagnað í Flugsafni Íslands 1. október 2013 að 70 ár voru liðin frá því að Þristinum TF-NPK var rennt út úr verksmiðju Douglas í Bandaríkjunum; flugstjórar og aðrir „vinir“ afmælisbarnsins sem þekktu það öðrum fremur Frá vinstri: Árni Sigurbergsson, Jóhannes Fossdal, Arngrímur Jóhannsson, Eyþór Baldursson, Erling Andreassen, Hallgrímur Jónsson, Tómas Dagur Helgason, Björn Thoroddsen og Haraldur Snæhólm, Björn Bjarnarson og Hannes Thorarensen. Mynd: Skapti Hallgrímsson