Fara í efni
Verslunarmannahelgin

Veigar hársbreidd frá því að komast áfram

Íslendingar þrír sem léku á The Amateur Championship: Veigar Heiðarsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Aron Emil Gunnarsson. Mynd: golf.is.

Veigar Heiðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar (GA) var einn þriggja íslenskra kylfinga sem tóku þátt í Opna breska áhugamannamótinu (The Amateur Championship) í golfi í vikunni. Eftir 36 holu höggleik komust efstu 64 kylfingarnir áfram í holukeppni og Veigar þurfti að fara í aukakeppni ásamt 20 öðrum kylfingum um síðustu 10 sætin í þeim hópi en allir voru þeir jafnir í sætum 55.-75. Þar var heppnin ekki með Veigari og hann var ekki í hópi þeirra sem komust áfram.

Mótið fer fram dagana 15.-20. júní á tveimur völlum í Englandi; Royal Liverpool og West Lancashire. Þarna mætast 288 áhugakylfingar í einu sterkasta áhugamannamóti ársins og léku allir kylfingarnir 18 holur á hvorum velli. Veigar lék best Íslendinganna þriggja og endaði samtals á tveimur höggum undir pari. Hann lék Royal Liverpool völlinn fyrri daginn á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari, en seinni daginn lék flott golf á West Lancashire vellinum og endaði á 69 höggum eða þremur undir pari.

Eins og áður sagði dugði þessi árangur í 55. sæti ásamt 20 öðrum kylfingum og þeir þurftu því að heyja aukakeppni um sæti 55.-64. en aðeins 64 efstu kylfingarnir komust áfram. Veigar þurfti að bíta í það súra epli ásamt 10 öðrum kylfingum að sitja eftir en efstu 10 í aukakeppninni komust áfram og við tekur útsláttarkeppni 64 efstu kylfinganna með holukeppnisfyrirkomulagi.

En þótt Veigar hafi ekki komist áfram í holukeppnina á þessu móti þá er samt annað mót sem tekur við. Svo vill til að það er einmitt Íslandsmótið í holukeppni og þar er Veigar meðal keppenda, ásamt sjö öðrum kylfingum úr GA. Keppnisfyrirkomulagið er keimlíkt því sem var á mótinu í Englandi, fyrst verður leikinn höggleikur og 16 efstu kylfingarnir í karla- og kvennaflokki komast áfram í holukeppnina sjálfa. Mótið hefst á morgun, föstudag og lýkur á sunnudag.