Verslunarmannahelgin
Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?
02.08.2025 kl. 06:00

Fjölskylduhátíðin Ein með öllu hófst í gær. Hér fylgir yfirlit yfir dagskrá hátíðarinnar og aðra viðburði í bænum í dag.
DAGSKRÁIN Í DAG, LAUGARDAG
MA túnið - fyrir ofan Lystigarðinn
- 12:00 - Leikhópurinn Lotta sýnir Hróa Hött. Sýningin hefst kl 12:00 á MA túninu ofan við Lystigarðinn.Hægt er að kaupa miða á staðnum og fyrirfram á tix.is
Ráðhústorg
- 13:00 - Markaðsstemning - Markaðsstemning á torginu og matarvagnar.
- 14:00 til 16:00 - Mömmur og möffins 15 ára - Öll innkoma viðburðarins rennur líkt og áður til Fæðingadeildarinnar á Akureyri. *Posi á staðnum.
Útisvæði Ísbúð Akureyrar
- 14:00 - 15:30 - Krakkaskemmtun í boði Kids Coolshop og Ísbúðin Akureyri, Imperial, Sykurverk og Dj Grill á bílaplaninu hjá Ísbúð Akureyrar þar sem Júlí og Dísa koma fram og skemmta öllum krökkum sem mæta. Einnig mætir Daníel Töframaður og töfrar með áhorfendum, Klói Kókómjólk mætir á svæðið og gefur öllum kókómjólk og Hvolpasveitin, Blæja og Bára verða á svæðinu til að heilsa upp á káta krakka á svæðinu!
Útisvæði Sykurverks
- 14:00 - Húlladúllan verður á útisvæði Sykurverks og skemmtir fyrir alla fjölskylduna í boði Sykurverks. Sannkölluð sirkusstemning og mikið húllafjör!
Útisvæði Vamos
- 14:00 - Vamos Versló fest, hinir ýmsu Dj-ar með ólíkar stefnur halda stuðinu gangandi í bænum
Bílaklúbbur Akureyrar
Bílaklúbbur Akureyrar heldur 5. og 6. umferð Íslandsmótsins í áttungsmílu þann 2. og 3. ágúst 2025. Keppt verður á spyrnubraut Bílaklúbbs Akureyrar.
- 10:00 Tímatökur hefjast
- 11:45 - Tímatökum lýkur
- 14:00 - Keppni hefst
Útisvæði Múlaberg
- 17:00 - Emmsjé Gauti á fríum útitónleikum við Múlaberg. Happy hour á milli 16:00 til 18:00.
Akureyrarvöllur
- 12:00-23:30 - Tvö tívolí á Akureyrarvelli, tvær mismunandi miðasölur.
- 19:00 - Öll í einu - tónleikaveisla. Miðasala á tix.is
Fram koma: Friðrik Dór, Emmsjé Gauti, Birnir, GDRN, Páll Óskar og Á Móti Sól
Matarvagnar verða staðsettir á svæðinu.
Glerártorg
Fjölskylduskemmtun
- 13:00 - 15:00: Frítt Candy floss
- 13:00: Blæja heilsar upp á börnin og hægt verður að taka myndir með henni. Hún ætlar líka að gefa nammi á meðan birgðir endast
- 15:00: Leikhópurinn Lotta með söngvasyrpu
Hrísey
- 16:00 - Tónleikar í Hríseyjarkirkju – Óskar Magnússon gítarleikari og Ragnhildur D. Þórhallsdóttir sópran.
Græni Hatturinn
- 21:00 - Hr. Eydís og Hera Björk - Alvöru '80s partý - Miðasala hér
Sjallinn
- 23:45 - Birnir, Emmsjé Gauti og Páll Óskar. Miðasala á tix.is
Mömmur og möffins eiga 15 ára afmæli og verða á sínum stað á Ráðhústorginu. Þar verður líka markaðsstemning og matarvagnar til taks. Mynd: Hilmar Friðjónsson
Opnunartími safna í dag:
- Listasafnið á Akureyri - 10-17
- Safnasafnið - 10-17
- Minjasafnið - 11-17
- Gamli bærinn í Laufási - 11-17
- Nonnahús - 11-17
- Leikfangasafnið í Friðbjarnarhúsi - 11-17
- Iðnaðarsafnið - 11-17
- Davíðshús - 13-17 (leiðsögn kl. 16.00)
- Smámunasafnið - 13-17
- Flóra - Menningarhús í Sigurhæðum - 9-17
- Flugsafn Íslands - 11-17
- Mótorhjólasafn Íslands - 13-17
- Ævintýragarðurinn í Oddeyrargötu 17 - 10-20
Yfirstandandi listasýningar:
- Samsýning norðlenskra listamanna - Mitt rými. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 14. september.
- KIMAREK: Innsetning í tilefni fjörutíu ára starfsferils Margrétar Jónsdóttur. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 28. september.
- Ný heildarsýning í Sigurhæðum og verk Margrétar Jónsdóttur leirlistamanns. Ath - leiðsögn um sýningarnar á laugardögum á milli 13 - 13.30.
- Línumál - myndlistasýning Vikars Mars í Hofi. Hamragil í Hofi. Sýningin stendur til 23. ágúst.
- TÍMI - RÝMI - EFNI – Sýning Þóru Sigurðardóttur í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- SAMLÍFI – Sýning Heimis Hlöðverssonar í Listasafninu á Akureyri. Sýningin stendur til 7. september.
- Safnasafnið – Fjöldi nýrra sýninga.