Fara í efni
Verslunarmannahelgin

Annar sigur KA/Þórs í röð á Íslandsmótinu

Þær léku vel í gær. Agatha Kjærbæk Djurhuus, til vinstri, gerði fjögur mörk og Sólveig Lára Kristjánsdóttir sjö. Mynd af Facebook síðu KA

KA/Þór vann HK með þriggja marka mun, 27:24, í gærkvöldi í Olísdeildinni, efstu deild Íslandsmótsins í handbolta. Eftir tap í fyrstu fimm leikjunum hefur KA/Þór nú unnið tvo í röð og er í áttunda sæti með fjögur stig eins og Grótta sem á einn leik til góða. HK og Stjarnan eru neðst með tvö stig.

Fyrri hálfleikur var hnífjafn framan af en KA/Þór náði fjögurra marka forystu þegar hann var ríflega hálfnaður en heimamenn söxuðu á forskotið og jöfnuðu 11:11 á lokasekúndunni.

Seinni hálfleikurinn var einnig í járnum lengstum en „Stelpurnar okkar“ í KA/Þór voru sterkari á lokasprettinum – gerðu sjö mörk á síðustu 10 mínútunum en HK aðeins þrjú.

Mörk KA/Þórs: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 7, Lydía Gunnþórsdóttir 7 (þar af 5 víti), Joan Rúnadóttir Johannesen 4, Agatha Kjærbæk Djurhuus 4,  Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 2, Lenka Ratvajská 2, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1.

Varin skot: Ingbjörg Lovísa Hauksdóttir 11 skot af 35 (31%).

Mörk HK: Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 5, Tinna Dröfn Hauksdóttir 5 (þar af 2 víti), Sóley Ívarsdóttir 4, Inga Fanney Hauksdóttir 3, Rakel Sara Ægisdóttir 2, Hekla Sóley Halldórsdóttir 2, Leandra Náttsól Salvamoser 2, Þórhildur Braga Þórðardóttir 1.

Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdótir 4 af 24 (17%), Elísabet Millý Elíasardóttir ekkert af 7 skotum.