Fara í efni
Verkmenntaskólinn á Akureyri

Hvað skiptir mestu í húsnæðismálum 60+?

Húsnæðismál eru mjög í brennidepli í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna hér á landi á laugardaginn, m.a. staða eldri borgara. Margir mæta á fundi og tjá sig en segja má að Benedikt Sigurðarson, „eftirlaunamaður á Akureyri“ eins og kallar sig gjarnan, hafi stigið skrefi lengra í gær á fjölmennum fundi Félags eldri borgara á Akureyri með fulltrúum framboðanna átta. Benedikt hafði nefnilega látið útbúa bækling sem hann færði öllum framboðunum og skoraði á þau að taka tillögur hans með í meirihlutaviðræður að kosningum loknum.
 
Benedikt, sem er fyrrverandi skólastjóri og fv. framkvæmdastjóri Búfestis hsf., hefur mikið skrifað um húsnæðismál í gegnum tíðina, og greinar hans m.a. birst hér á akureyri.net. Hann fjallar nú í tveimur greinum um efni bæklingsins sem hann afhenti fulltrúum framboðanna, fyrri hlutinn birtist í dag en sá síðari á morgun.
 
Í bæklingnum sem Benedikt kallar AKUREYRI - ALLA DAGA. Húsnæðismál á kosningavori 2026 með sérstakri áherslu á 60 ára + og greinunum kveðst hann gera tilraun til að draga upp raunhæfa mynd af því sem skiptir mestu þegar rætt er um húsnæði sem hagsmunamál eldri borgara 60 ára+; það er breytt húsnæðiskerfi, ekki eina tegund íbúða.
 
Hann segir: „Fyrirliggjandi áætlanir Akureyrarbæjar skortir að mati undirritaðs – raunsætt mat á stöðu og mögueikum varðandi íbúaþróun – vöxt og samsetningu. Þess vegna verður ný bæjarstjórn að taka upp allar slíkar áætlanir – samhliða endurskoðun á Aðalskipulagi Akureyrarbæjar.“
 
Benedikt segir grundvallaratriði að fólk geti valið lausn sem hentar stöðu þess hverju sinni – „og flutt á milli íbúðagerða við breytingar á aðstæðum – án þess að detta út eða lenda í blindgötu og einangrun.“
 

Velstæðir eldri borgarar geta auðvitað leyst húsnæðismál á eigin forsendum, segir hann – án þess að taka þátt í samlagi-/félögum um þjónustu – „en það er hins vegar beinlínis réttur þeirra eins og allra annarra borgara að geta valið búsetu og eiga aðgang að samfélagi með jafnöldrum sínum og þeirri þjónustu sem bætir við lífsgæði kynslóðahópsins - og eftir því sem aðstæður breytast.“

  • Grein Benedikts í dag:

Húsnæðismál 60 ára + – íbúaþróun á Akureyri 2026-2026