Fara í efni
Verkmenntaskólinn á Akureyri

Gullmolar úr frábæru safni Þóris – MYNDIR

Myndir: Þórir Tryggvason

Þórir Ólafur Tryggvason málarameistari á Akureyri hefur staðið vaktina vopnaður myndavélum, linsum og öðru tilheyrandi í tæpa þrjá áratugi og skrásett íþróttasögu bæjarins. Hann hefur myndað þátttakendur í flestum ef ekki öllum íþróttagreinum sem stundaðar eru, allt frá börnum að stíga fyrstu íþróttaskrefin upp í elsta keppnisfólk. Vetur, sumar, vor og haust er Þórir mættur, skráir söguna samviskusamlega og ekki þarf að velkjast í vafa um að framlag hans er ómetanlegt.

Óteljandi gullmolar leynast í safni Þóris og hér býður hann lesendum akureyri.net upp á nokkrar skemmtilegar myndir – gamlar og nýjar – í tilefni nýliðins N1 móts KA í fótbolta fyrir 5. flokk stráka.

Þórir Tryggvason á vaktinni; á knattspyrnuleik á Akureyri sumarið 2020. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Í einu liða Stjörnunnar á N1 mótinu um helgina var drengur að nafni Oliver Breki Aronsson. Hann fetaði þar með í fótspor föður síns, sem keppti með Þór á Essomótinu, eins og það kallaðist þá, um aldamótin; sá er Aron Einar Gunnarsson, síðar landsliðsfyrirliði.

„Ég sagði nú einhvern tíma að ég myndi hætta þessu þegar ég færi að mynda börn þeirra barna sem ég myndaði á sínum tíma,“ sagði Þórir Tryggvason léttur við akureyri.net um helgina. Nokkuð er síðan Þórir hóf að mynda börn barnanna – en hann er þó hvergi nærri hættur.

Aron Einar á Esso móti KA um aldamótin. KA-maðurinn sem reynir þarna að ná af honum boltanum er Einar Sigþórsson sem síðar gekk til liðs við Þór og lék nokkur sumur með meistaraflokki félagsins.

Þórsarar á Esso móti (sem nú er N1 mótið) – kunnir kappar. Efri röð frá vinstri: Þorsteinn Ingason, seinna fyrirliði meistaraflokks Þórs, Sveinbjörn Pétursson, handboltamarkvörður og atvinnumaður í þeirri grein, Andri Heiðar Ásgrímsson sem lék um tíma með meistaraflokki Þórs og Aron Einar Gunnarsson. Neðri röð frá vinstri: Kristján Sigurólason, sem lék með meistaraflokki Þórs og síðar liðum Dalvíkur og Magna, Heiðar Þór Aðalsteinsson, síðar kunnur handboltamaður, og Gunnlaugur Darri Garðarsson. Mynd: Þórir Tryggvason

Snemma beygist krókurinn. Aron Einar Gunnarsson á Esso móti KA fyrir aldarfjórðungi.

Óliver Breki á fleygiferð með boltann í úrslitaleik brasilísku deildarinnar á laugardaginn. Mynd: Þórir Tryggvason

Aron Einar Gunnarsson, Oliver Breki Aronsson og Kristbjörg Jónasdóttir á N1 mótinu um helgina. Mynd: Þórir Tryggvason


Myndasyrpa frá N1 móti KA um helgina

Myndasyrpa frá Pollamóti Þórs um helgina