„Gleðidagur fyrir allt skólasamfélagið“

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Glerárskóla undanfarin ár og í gær var þriðja áfanga þess verkefnis fagnað, þegar A-álma skólans var formlega tekin í notkun við hátíðlega athöfn. Húsnæðið hefur verið notað í vetur og lýstu starfsmenn mikilli ánægju með hvernig til tókst við endurbæturnar.
„Húsnæðið hefur tekið stakkaskiptum frá því sem var og býður nú upp á frábæra og faglega umgjörð fyrir nám og starf,“ sagði Eyrún Skúladóttir, skólastjóri Glerárskóla, í gær.
„Markmið framkvæmdanna var að hanna og endurgera skólahúsnæðið þannig að það yrði heilsusamlegt og þjónaði starfseminni eins og best yrði á kosið fyrir utan að uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til skólahúsnæðis í dag og varða m.a. hljóðvist, eldvarnir, loftgæði, öryggismál og tæknimál varðandi kennslu.“
Þrír nemendur 9. bekkjar fluttu skólasöng Glerárskóla við athöfnina í gær: Hrafn Leví Þórðarson, Torfhildur Elva Friðbjargar Tryggvadóttir og Kristófer Aron Jónsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Eyrún sagði að áhersla hefði verið lögð á að nýta neðri hæð álmunnar mun betur en verið hefur með því að lækka jarðveg á milli hennar og C-álmu, koma fyrir stórum gluggum og aðgengi frá rýmum á neðri hæð og gera þannig hæðina vistlega og bjarta með góðu aðgengi.
Þessar breytingar og viðbygging við tengigang milli álma gerðu mögulegt að koma fyrir allri verknámskennslu á neðri hæðinni. Hér að neðan má sjá þá ótrúlegu breytingu sem orðið hefur á svæðinu.
Mynd tekin sumarið 2023, C álman til vinstri og A álman til hægri. Mynd: Haraldur Ingólfsson
Þá og nú! Myndir af vef Akureyrarbæjar.
Mynd: Skapti Hallgrímsson
Á efri hæðinni er öll starfsmannaðstaða, móttaka skólans, funda- og sérkennslurými auk kennslurýma. Framkvæmdin var þriðji áfangi heildarendurbóta húsnæðis Glerárskóla eins og áður kom fram. Fyrsti áfangi, sem var B-álma, var tekin í notkun 15. september 2019 og annar áfangi, D-álma, var tekin í notkun í ágúst 2020 en neðri hæðin um áramót 2020-2021. A-álman var tilbúin til skólahalds haustið 2024 en áfram er unnið við ýmsan frágang framkvæmda.
„Framkvæmdin fól í sér öll rif og heildar endurbætur á A álmu Glerárskóla, hluta tengigangs og innigarða á milli A og C álmu og austan A-álmu, einnig var byggð nýbygging á milli A og C álmu eins og áður er nefnt,“ sagði Eyrún. „Um er að ræða heildar endurnýjun bæði utan- og innanhúss á húsnæðinu þar með talið á þaki og þakrými og lóðarfrágangur sem útboðsgögn náðu til.“
Í myndmenntastofunni. Ásthildur Sturludóttir, Eyrún Skúladóttir og Elsa María Guðmundsdóttir sjónlistakennari. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Eyrún nefndi ýmislegt:
- Þak var endurnýjað að allmestu leyti. Steypt þakplata var endureinangruð og þak klætt upp á nýtt og settar nýjar þakrennur.
- Báðar hæðir álmunnar voru hreinsaðar alveg út og allt endurnýjað.
- Lagður var gólfhiti og vatnslagnir endurnýjaðar ásamt öllum raf- og smáspennulögnum,
- Komið var fyrir nýrri loftræsingu. Inngarðar milli A-og C-álmu og einnig austan við álmuna voru gerðir upp með nýjum aðkomutröppum og þjónusturömpum.
- Nýtt hljóðkerfi er nú í A, B og D álmu, gagnvirkir skjái í kennslurýmum, hiti í gólfum „og glæsileg ný húsgögn sem mynda nútímalegt og notalegt námsumhverfi. Hljóðvistin er sérstaklega góð og stuðlar að betri einbeitingu og vellíðan allra í rýmunum,“ sagði Eyrún.
- „Skólinn hefur verið endurnýjaður af metnaði og fagmennsku – allt nema C-álman, sem er á áætlun að taka til endurbóta árið 2027 – 2028.“
- „Þá er vert að nefna að ný og vel hönnuð skólalóð verður unnin í sumar og tekin í notkun á komandi skólaári og mun hún nýtist afar vel fyrir leik, hreyfingu og útinám nemenda.“
- „Í öllu ferlinu hefur verið hlustað á þarfir og raddir starfsfólks og nemenda, og gleði og þakklæti er það sem er okkur efst í huga þegar nýja rýmið er nú formlega opnað. Það hefur komið í ljós á liðnu skólaári að allar framkvæmdir hafa tekist afar vel og starfssemi skólans blómstrar í nýju húsnæði,“ sagði skólastjórinn.
- „Glerárskóli er faglegri, fallegri og nútímalegri en nokkru sinni fyrr og það er sannkallaður gleðidagur í dag fyrir allt skólasamfélagið,“ sagði Eyrún Skúladóttir.
Smekkleg útikennslustofa austan við A-álmu, nýjar tröppur og þjónusturampur. Myndir af vef Akureyrarbæjar.
Gríðarlegar framkvæmdir hafa staðið yfir, eins og af upptalningunni má ráða og Eyrún Skúladóttir skólastjóri tók sérstaklega fram í gær að allir hönnuðir, ráðgjafar og verktakar ættu hrós skilið fyrir framkvæmdina sem tekist hefði sérlega vel. Hún sagði samstarf við þá alla hafa verið til mikillar fyrirmyndar.
Hönnuðir og ráðgjafar framkvæmdanna eru:
- Ágúst Hafsteinsson arkitekt – teiknistofan Form
- Ljósgjafinn tæknideild – raflagnahönnun
- Efla verkfræðistofa – loftræsing, lagnir og burðarþol
- Örugg verkfræðiþjónusta – brunahönnun
- Trivium ráðgjöf – hljóðvist
Umsjón og eftirlit var á vegum Umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar.
- Aðalverktaki var Tréverk ehf.
Aðrir verktakar:
- Rafeyri ehf – raflagnir
- Norðurlagnir ehf – pípulagnir
- Blikk og tækni ehf – loftræsting
- Málningarfélagið – málningarvinna
- Múriðn ehf – múrverk
- Viðar Þór Pálsson – dúklögn
- Steypusögun norðurlands – múrsögun og brot
- GV gröfur ehf – jarðvinna