Fara í efni
Veður

Þrír ungir leikmenn skrifa undir hjá KA

Þrjár ungar knattspyrnukonur, Ragnheiður Sara Steindórsdóttir, Ísey Ragnarsdóttir og Ellý Sveinbjörg Elvarsdóttir, hafa skrifað undir samning um að leika með KA. „Allar eru þær uppaldar hjá KA og eru það frábærar fréttir að þær taki slaginn með okkar nýstofnaða kvennaliði,“ segir á vef félagsins.

Ísey kom við sögu hjá Þór/KA í Bestu deildinni á síðasta ári en lék með Völsungi í næst efstu deild í sumar og þær Ragnheiður Sara og Ellý Sveinbjörg hafa spilað bæði með Dalvík/Reyni og Völsungi.

„Hið nýstofnaða lið KA leikur í 2. deild á komandi sumri og erum við ákaflega spennt fyrir því að byggja upp öflugt og metnaðarfullt umhverfi fyrir okkar stelpur. Á dögunum skrifaði Harpa Jóhannsdóttir undir hjá félaginu og erum við afar ánægð að þær Sara, Ísey og Ellý bætist nú við. Stelpurnar hafa nú þegar verið að æfa undanfarnar vikur og eru enn frekari fréttir af leikmannamálum framundan næstu daga.“

Nánar hér: Sara, Ísey og Ellý skrifa undir hjá KA