Fara í efni
Umhverfismál

HA útskrifar fyrstu nema nýrrar námslínu

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor HA og einn kandidatinn sem brautskráðist í dag, Berglind Emilsdóttir BS í hjúkrunarfræði. Við púltið stendur Brynjar Karlsson sviðsforseti. Mynd: Sindri Swan

Háskólinn á Akureyri (HA) brautskráir á Háskólahátíð um helgina tæplega 640 kandídata og hafa þeir aldrei verið fleiri í sögu skólans. Árið 2025 var 591 kandídat brautskráður og fjölgunin er því um 8% milli ára.

Brautskráð er bæði í dag og á morgun, laugardag. Meðal þeirra sem brautskráðir voru í dag eru fyrstu 9 stúdentarnir úr 60 ECTS viðbótarnámi á meistarastigi úr námslínunni Ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Fram kemur í frétt á vef HA að námið sé kennt við hjúkrunarfræðideild skólans í samstarfi við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands og veita skólarnir prófið sameiginlega. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða, heildræna og samþætta ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirrar auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana.

Baldvin M. Hermannsson, forstjóri flugfélagsins Atlanta, var heiðursgestur kandídata á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði á háskólahátíð í dag. Baldvin hefur starfað hjá félaginu síðan hann brautskráðist frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Mynd: Sindri Swan

Áætlað að fjöldi fólks með heilabilun þrefaldist næstu 30 ár

Í fréttinni á vef HA er rakið að þróun sérþekkingar á sviðinu sé brýn, þar sem fólki með heilabilun fjölgar ört á heimsvísu. Áætlað er að fjöldi fólks með heilabilun muni þrefaldast á næstu 30 árum. Náminu var komið á fót í samræmi við stefnumótunarvinnu og lið í aðgerðaáætlun stjórnvalda í þjónustu við fólk með heilabilun frá 2020.

Námið er þverfaglegt og kennt í fjarnámi yfir 2 ár með tímasókn og hermikennslu í rauntíma auk vettvangsnáms. Stúdentar sem innritast þurfa að hafa lokið bakkalárprófi á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda. Til að tryggja framhald námsins og gæði hafa háskólarnir tveir undirritað samstarfssamning og boðið verður upp á námið næst haustið 2027 og síðan á tveggja ára fresti.

Kandídatar sem brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri í dag ásamt Áslaugu Ásgeirsdóttur rektor og Brynjari Karlssyni sviðsforseta. Mynd: Sindri Swan