Umhverfismál
Göngugatan stendur undir nafni í sumar
27.04.2026 kl. 10:20
Sá kafli Hafnarstrætis sem stundum er kallaður „göngugatan“ – frá Kaupvangsstræti norður að Ráðhústorgi – verður lokuð fyrir umferð vélknúinna ökutækja frá og með 1. maí. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar í morgun.
- Opið verður fyrir ökutæki með aðföng frá kl. 7-10 alla daga.
- Aðgengi fyrir P-merkta bíla og ökutæki viðbragðsaðila verður ávallt tryggt.
- Opnað verður aftur fyrir umferð þann 30. september.
„Lokunin er með sama sniðið og árið 2025 og er í samræmi við samþykkt Akureyrarbæjar um tímabundnar lokanir gatna fyrir umferð vélknúinna ökutækja sem er að finna á akureyri.is,“ segir á vefnum.