Fara í efni
Þór/KA

Sparisjóðurinn semur við kvennalið Þórs/KA

Jón Ingvi Árnason sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Höfðhverfinga og Guðrún Una Jónsdóttir fulltrúi Þórs/KA.

Sparisjóður Höfðhverfinga hefur gert samning um samstarf við kvennalið Þórs/KA í knattspyrnu. „Sparisjóðurinn leggur áherslu á að styrkja verkefni á sviði íþrótta- og tómstundamála í nærumhverfi sínu en hlutverk Sparisjóðsins er að standa vörð um hagsmuni landsmanna, styrkja innviði samfélagsins og styðja við félags- og atvinnulíf í heimabyggð,“ segir í tilkynningu.