Fara í efni
Þór/KA

KA-menn héldu hreinu og fengu eitt stig í Eyjum

Ívar Örn Árnason og félagar í KA héldu markinu hreinu í dag í fyrsta skipti í sumar. Mynd: Ármann Hinrik

KA gerði markalaust jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum í dag í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Leikurinn þótti afar bragðdaufur. 

Það jákvæða við leikinn fyrir KA er að liðið hélt markinu hreinu í fyrsta skipti og fékk eitt stig á erfiðum útivelli. Þá komst KA komst úr neðsta sætinu, hefur nú fimm stig en FH, sem mætir ÍA á Akranesi annað kvöld, er neðst með fjögur stig.

Akureyri.net hafði því miður ekki tök á að fylgjast með leiknum og vísar því í umfjöllun annarra fjölmiðla að þessu sinni.

Fótbolti.net segir: „Steindautt jafntefli hérna á Þórsvelli. Bæði lið geta verið sátt við stigið miðað við spilamennsku en það var íítið að frétta um færi og gæðin á síðasta þriðjungi ekkert sérstök. Held að það hefði ekki verið skorað þó leikurinn hefði staðið til 12 í kvöld. “

mbl.is segir: „Óhætt er að segja að leik­menn hafi ekki reimað á sig marka­skóna og ekki einu sinni gert sig lík­lega til að skora. Leik­ur­inn endaði því með marka­lausu jafn­tefli.“

visir.is segir: „Veðurblíðan lék við alla viðstadda á Þórsvellinum í dag og aðstæður til knattspyrnuiðkunnar voru til fyrirmyndar. Það virtist þó ekki skila sér til leikmanna, því fyrri hálfleikur var afar bragðdaufur og bauð upp á svo gott sem engin færi.“

Leikskýrslan

Staðan í deildinni