Fara í efni
Þór

Vikur úrslitakeppna og umspila fram undan

Fjögur Akureyrarlið í þremur íþróttagreinum verða í eldlínunni í umspili og úrslitakeppnum í sínum deildum í vikunni. Úrslitakeppnin í íshokkí kvenna er hafin, úrslitakeppni Olísdeildanna í handbolta hefst í vikunni, sem og umspil um laust sæti í Bónusdeild kvenna í körfubolta. Þá er úrslitaleikurinn í Kjarnafæðimóti karla í knattspyrnu á dagskrá vikunnar.

ÞRIÐJUDAGUR 24. MARS - körfubolti, íshokkí

Kvennalið Þórs í körfubolta leikur lokaleik sinn í 1. deildinni á þriðjudag þegar Snæfell úr Stykkishólmi kemur í heimsókn í Íþróttahöllina á Akureyri. Úrslitin í þessum leik ráða því hvort Þór endar í 2. eða 3. sæti deildarinnar, en liðið þarf sigur til að endurheimta 2. sætið af Fjölni. 

  • 1. deild kvenna í körfubolta
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Snæfell
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Óháð úrslitunum í leik Þórs og Snæfells er klárt að Þór og Fjölnir mætast í undanúrslitum umspilsins um laust sæti í Bónusdeildinni. Í því umspili eru liðið í 9. sæti Bónusdeildarinnar, sem er Hamar/Þór og liðin í 2., 3. og 4. sæti 1. deildarinnar. Liðin tvö í Árnessýslunni, Hamar/Þór og Selfoss mætast og svo Þór og Fjölnir, en eina sem er óráðið hvort þessara liða byrjar á heimavelli.

- - -

Annar leikur í úrslitaeinvígi Toppdeildar kvenna í íshokkí verður í Skautahöllinni í Laugardal á þriðjudagskvöld. SA vann fyrsta leikinn fyrir norðan á laugardag, 1-0, og má því búast við jafnri og spennandi viðureign í Laugardalnum á þriðjudag. Takist SA að vinna á liðið möguleika á að landa Íslandsmeistaratitlinum í þriðja leik á Akureyri á fimmtudagskvöld.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Úrslit, leikur 2
    Skautahöllin í Laugardal kl. 19:45
    SR - SA
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

MIÐVIKUDAGUR 25. MARS - handbolti

Úrslitakeppnin í Olísdeild karla í handbolta er á næstu grösum. Mótherjar KA eru þó ekki alveg á næstu grösum því það eru Eyjamenn. ÍBV endaði í 4. sæti deildarinngar og KA í því fimmta. Það er því ÍBV sem á oddaleiksréttinn í þessari viðureign. Vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í undanúrslit Íslandsmótsins.

  • Olísdeild karla í handbolta
    Átta liða úrslit, leikur 1
    Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum kl. 18
    ÍBV - KA
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

Leikir þessara liða í deildinni í vetur enduðu með eins og tveggja marka sigri. ÍBV vann 36-34 í Eyjum í október og KA vann 29-28 á Akureyri í febrúar.

FIMMTUDAGUR 26. MARS - íshokkí

Þriðji leikur í úrslitakeppni Toppdeildar kvenna í íshokkí er á dagskrá í Skautahöllinni á Akureyri á fimmtudagskvöld. Það veltur á úrslitum í leik liðanna syðra á þriðjudagskvöld hvort SA muni eiga möguleika á að klára einvígið og lyfta Íslandsbikarnum í þriðja leik.

  • Toppdeild kvenna í íshokkí
    Úrslit, leikur 3
    Skautahöllin á Akureyri kl. 19:30
    SA - SR
  • Útsending: icehockeyiceland.tv
    Áskrift að rás eða stökum leikjum

FÖSTUDAGUR 27. MARS - fótbolti

Úrslitaleikur A-deildar karla í Kjarnafæðimótinu í knattspyrnu er á dagskrá á föstudag. Samkvæmt auglýsingu Knattspyrnudómarafélags Norðurlands er leikurinn settur á Þórsvöll, sem er væntanlega nýi gervigrasvöllurinn á Þórssvæðinu, en þar er enn ýmsu ólokið í umgjörð vallarins, meðal annars áhorfendastúku og aðeins nokkrir dagar til stefnu.

  • Kjarnafæðimótið í knattspyrnu, A-deild karla
    Úrslitaleikur kl. 19:30
    Þór - KA

Knattspyrnudómarafélag Norðurlands stendur fyrir Kjarnafæðimótinu ár hvert. Að venju verður selt inn á úrslitaleikinn og mun ágóðinn renna til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis að þessu sinni.

LAUGARDAGUR 28. MARS - handbolti

Fyrsta umferð úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í handbolta hefst um komandi helgi. Liðin í 3.-6. sæti hefja leik, en tvö efstu liðin í deildinni, Valur og ÍBV, bíða þar til í undanúrslitum. Þau eiga reyndar eftir að mætast í lokaumferð deildarinnar og verður sá leikur einnig á laugardag. Hann skiptir þó engu máli um röð liðanna því Valur er deildarmeistari og ÍBV endaði í 2. sæti.

  • Olísdeild kvenna í handbolta
    Úrslitakeppni, 1. umferð, leikur 1
    Ásvellir í Hafnarfirði 
    Haukar - KA/Þór
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

KA/Þór endaði í 6. sæti deildarkeppninnar og mætir Haukum, sem enduðu í 3. sætinu. Haukar unnu allar þrjár viðureignir þessara liða í deildinni í vetur, tvær þeirra með meira en tíu marka mun. Fyrsti leikurinn var á Akureyri í október og endaði 23-27. Haukar unnu svo 35-20 í Hafnarfirði í desember og þriðji leikurinn endaði 20-31 á Akureyri í febrúar.

SUNNUDAGUR 29. MARS - handbolti, körfubolti

Annar leikur KA og ÍBV í átta liða úrslitum Olísdeildarinnar í handbolta er á dagskrá á Akureyri í dag. Vinna þarf tvo leiki til að fara áfram í undanúrslit.

  • Olísdeild karla í handbolta
    Átta liða úrslit, leikur 2
    KA-heimilið kl. 15
    KA - ÍBV
  • Útsending: Handboltapassinn í Sjónvarpi Símans
    Áskriftarsjónvarp

- - -

Umspil fjögurra liða um laust sæti í Bónusdeild kvenna í körfubolta á næsta tímabili hefst á laugardag. Það ræðst þó ekki fyrr en á þriðjudagskvöld hvort Þórslliðið byrjar á heimaleik eða útileik. Með sigri á Snæfelli á þriðjudag færi Þór aftur upp í 2. sætið og ætti þá heimaleik gegn Fjölni á laugardag - en tapi Þór fyrir Snæfelli á Fjölnir oddaleiksréttinn og yrði fyrsti leikurinn þá í Grafarvoginum.

  • Bónusdeild/1. deild kvenna í körfubolta
    Umspil, undanúrslit, leikur 1
    Íþróttahöllin á Akureyri eða Dalhús í Grafarvogi
    Þór - Fjölnir eða Fjölnir - Þór
  • Útsending: KKÍ TV á Sýn
    Áskriftarsjónvarp

Upplýsingar um leikstað og tíma verða uppfærðar að loknum leik Þórs og Snæfells á þriðjudagskvöld.