Fara í efni
Þór

Tryggvi bestur og vann Evrópugull á ný

Tryggvi Snær Hlinason, fyrirliði Bilbao Basket, hampar Evrópubikarnum í Bilbao í gærkvöldi. Mynd af vef FIBA Europe.

Landsliðsmaðurinn Tryggvi Snær Hlinason, sem hóf ferilinn með Þór, vann í gær Evrópumeistaratitil í körfuknattleik með liði sínu Bilbao Basket. Félagið vann Evrópubikarkeppnina – FIBA Europe Cup – og skráði þar með nafn sitt á spjöld sögunnar því þetta er í fyrsta sinn sem lið nær að sigra i keppninni tvö ár í röð.

Tryggvi Snær, Bárðdælingurinn stóri og sterki, er fyrirliði Bilbao liðsins og tók því á móti Evrópubikarnum í Miribilla íþróttahöllinni fyrir framan 10.000 manns sem troðfylltu áhorfendastæðin.

Tryggvi Snær lék gríðarlega vel í gær; var besti maður Bilbao liðsins þegar allir tölfræðiþættir eru lagðir saman. Var með 21 framlagsstig en Margiris Mormantas var með 20. Tryggvi spilaði í 24 mínútur af 40, næst mest allra leikmanna Bilbao liðsins, gerði níu stig - hitti úr öllum fjórum skotum sínum úr teignum og nýtti annað tveggja vítakasta. Tryggi tók sjö fráköst, þar af sex í vörn, gaf fimm stoðsendingar og varði tvö skot.

Tryggvi Snær treður boltanum með tilþrifum í körfuna í úrslitaleiknum í gærkvöldi.

PAOK sigraði í fyrri úrslitaleiknum á heimavelli, 79:73, og hafði enn forystu samanlegt í hálfleik í gærkvöldi, þegar Tryggvi og félagar höfðu tveggja stiga forystu, 43:41. Grikkirnir unnu fyrsta leikhluta 23:19, Bilbao hafði hins vegar betur í öðrum leikhluta, 24:18, og frábær þriðji fjórðungur lagði grunninn að sigri spænska liðsins; þá skoruðu Tryggvi og samherjar hans 27 stig en Grikkirnir aðeins 16. Síðasti fjórðungur fór 19:17 fyrir spænska liðið og því munaði 15 stigum í lokin – úrslitin 89:74. Bilbao hafði mest 22 stiga forystu snemma í fjórða leikhluta.

Evrópubikarkeppnin er næstefsta stigið í félagsliðakeppni körfuboltans í álfunni á eftir Meistaradeildinni.

  • Smellið á myndina hér að neðan til að sjá myndband með völdum köflum úr úrslitaleiknum í gærkvöldi.

  • Fullt nafn spænska liðsins sem Tryggvi leikur með er Club Basket Bilbao Berri S.A.D., venjulega nefnt Bilbao Basket en einnig Surne Bilbao Basket vegna aðal styrktaraðila liðsins, tryggingafélagsins Surne.