Fara í efni
Þór

Þórssigur gegn KFG í miklum spennuleik

Justin Andrew skoraði 39 stig í sigri Þórs í gær og er með 24,3 stig að meðaltali í leik það sem af er deildarkeppninni. Hér er hann á fleygiferð í leiknum í gær. Úlfur Týr Ágústsson úr KFG veitir honum eftirför. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Þórsarar lögðu lið KFG í æsispennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik, þeirri næstefstu í Íslandsmótinu, eða Bæjarins beztu deildinni eins og hún er nú nefnd. Lokatölur urðu 106-102 Þór í vil. Justin Andrew skoraði 39 stig fyrir Þór. 

Gestirnir voru örlítið fljótari í gang, en Þórsarar svöruðu fljótlega og leiddu lengst af fyrri hálfleiknum, alderi þó með meira en átta stigum. KFG vann þann mun upp og náði þriggja stiga forystu í lok fyrri hálfleiks, 52-55. Þeir héldu frumkvæðinu allan þriðja leikhlutann og höfðu sex stiga forskot að honum loknum. Þórsarar voru hungraðir í sigur og sneru leiknum sér í hag í fjórða leikhlutanum, en munurinn þó aldrei meiri en sex stig. 

Lokamínútan varð síðan æsispennandi og jafnt, 101-101, þegar 31 sekúnda var eftir á klukkunni. Jalen Green og Baldur Örn Jóhannesson voru báðir komnir með fjórar villur, Jalen um miðjan þriðja leikhluta og Baldur snemma í þeim fjórða. Það mátti því ekki mikið út af bregða, en eftir að Jalen fékk tvö víti og kom Þór í 106-101 fékk hann þriðju villuna í næstu sókn KFG, en þá voru þó aðeins þrjár sekúndur eftir. Björn Skúli Birnisson fékk þrjú vítaskot, en nýtti aðeins eitt þeirra. Pétur Cariglia náði frákastinu eftir það þriðja og tíminn rann út. Sigur Þórs í höfn.

Þór - KFG (31-26) (21-29) 52-55 (22-25) (26-21) 106-102

Justin Andrew var maður leiksins hjá Þórsurum, skoraði 39 stig og átti sjö stoðsendingar. Jalen Green kom næstur með 29 stig og Baldur Örn Jóhannesson tók 11 fráköst. Hjá KFG var það fyrirliðinn Björn Skúli Birnisson sem var langatkvæðamestur skoraði 38 stig, þar af úr tíu þriggja stiga skotum þar sem hann var með 71% nýtingu.

Helstu tölur úr leiknum, stig/fráköst/stoðsendingar:

Þór

Justin Andrew 39/4/7, Jalen Green29/8/3, Pétur Cariglia 12/7/1, Axel Arnarsson 10/5/5, Baldur Örn Jóhannesson 7/11/2, Hlynur Ingi Finnsson 5/3/0, Andri Már Jóhannesson 4/3/1, Hjálmar Helgi Jakobsson 0/2/0. Smári Jónsson komst ekki á blað. Arngrímur Friðrik Alfreðsson, Bergvin Ingi Magnússon og Tryggvi Már Elínarson voru á leikskýrslu, en komu ekki við sögu í leiknum..

KFG

Björn Skúli Birnisson 38/8/7, Atli Hrafn Hjartarson 18/2/1, Jakob Kári Leifsson 17/3/4, William Thompson 10/19/1, Steinar Rafn Rafnarsson 9/2/3, Sindri Logason 6/0/0, Úlfur Týr Ágústsson 2/3/2, Baltasar Torfi Hlynsson 2/1/1, Daníel Geir Snorrason 0/1/1. Marinó Freyr Ómarsson komst ekki á blað.

Þórsarar eru í 9. sæti deildarinnar að loknum sex umferðum, hafa unnið tvo leiki og eru þar jafnir Hamri úr Hveragerði sem vermir sætið fyrir ofan. 

Leikskýrsla og tölfræði

Staðan í deildinni

Næst:

  • Meistaravellir
    Föstudagur 13. nóvember kl. 19:15
    KV - Þór