Fara í efni
Þór

Þórsarar gerðu fimm mörk og héldu hreinu

Þeir skoruðu allir í Mosfellsbæ í gærkvöldi. Frá vinstri: Atli Sigurjónsson, Ágúst Eðvald Hlynsson, Christian „Greko“ Jakobsen og Ragnar Óli Ragnarsson. Myndir: Ármann Hinrik
Þórsarar burstuðu Aftureldingu, 5:0, í Mosfellsbæ í Lengjubikarkeppninni í knattspyrnu í gærkvöldi og eru efstir í 2. riðli A deildar með sjö stig að loknum þremur leikjum. Í gærmorgun voru Þórsarar líka með sjö stig úr þremur leikjum og þá skemmtilegu markatölu 14:2, en veður eiga það til að skipast skjótt í lofti; Völsungur á Húsavík dró lið sitt úr keppninni í gær og þar með hurfu 10 mörk og þrjú stig úr tölfræði Þórs.
 
Fyrsta mark Þórs kom á 41. mín. Aron Elí Sævarsson varð fyrir því óláni að gera sjálfsmark eftir fasta fyrirgjöf inn á markteig og áður en hálfleikurinn var allur skoraði Cristian „Greko“ Jakobsen laglegt skallamark.
 
Ágúst Eðvald Hlynsson kom Þór í 3:0 snemma í seinni hálfleik með fallegu skoti utan úr teig, Ragnar Óli Ragnarsson skallaði boltann í mark eftir hornspyrnu á 73. mín. og undir lokin bætti Atli Sigurjónsson fimmta markinu við eftir slæm mistök heimamanna.
 

Elvar kominn aftur í Þór

Vinstri bakvörðurinn Elvar Baldvinsson er kominn í herbúðir Þórs á ný og var í byrjunarliðinu í gær. Óhætt er að segja að hann hafi farið vel af stað því Elvar átti sendingu fyrir markið í tveimur fyrstu mörkunum.

Elvar er Húsvíkingur sem lék Þór frá 2020 til 2022 . Eftir að hann tók þátt í 21 leik í Lengjudeildinni með Þór sumarið 2022 gekk Elvar til liðs við Vestra, var í liðinu þegar félagið fór upp úr Lengjudeildinni 2023 og spilaði 19 leiki í Bestu deildinni 2024.

Síðasta sumar lék Elvar 19 leiki með Völsungi í Lengjudeildinni. Elvar er fæddur árið 1997 og hefur leikið 249 leiki í deild og bikar í meistaraflokki með Völsungi, Þór og Vestra og skorað í þeim 35 mörk,“ segir í tilkynningu frá Þór.

Leikskýrslan

Staðan í riðlinum

Síðasti leikur Þórsara í riðlinum verður á heimavelli þriðjudaginn 10. mars þegar Valsmenn kom í heimsókn.