Fara í efni
Þór

Tap í botnslagnum og Þór/KA í neðsta sætið

Margrét Árnadóttir skoraði bæði mörk Þórs/KA gegn Fram í gær en þau dugðu skammt. Mynd: Ármann Hinrik

Þór/KA rann niður í neðsta sæti Bestu deildar kvenna í knattspyrnu í gær þegar liðið tapaði botnslagnum fyrir Fram í Reykjavík. Leikurinn endaði 3:2, þetta var fyrsti sigur Framstúlkna sem nú eru komnar með fjögur stig en Þór/KA hefur enn aðeins tvö stig. Liðið hefur enn ekki unnið leik þegar sex umferðir eru að baki í deildinni.

Leikurinn byrjaði fjörlega því Margrét Árnadóttir náði forystu fyrir Þór/KA strax á sjöttu mínútu með skoti af stuttu færi eftir að ónákvæmt skot Maríu Daggar Jóhannesdóttur varð að afbragðs sendingu. Markagleði gestanna varði ekki lengi því Framarar jöfnuðu á 11. mínútu þegar Alda Ólafsdóttir skoraði af stuttu færi og strax á næstu mínútu komst heimaliðið yfir eftir skyndisókn; Taylor Marie Hamlett þrumaði þá boltanum í fjærhornið hægra megin úr teignum.

Gestirnir tóku gleði sína á ný þegar Margrét skoraði aftur, skallaði boltann í netið af nokkurra sentimetra færi eftir að Arna Sif Ásgrímsdóttir hafði skallað að marki eftir hornspyrnu.

Ekki voru nema tæpar fimm mínútur liðnar af seinni hálfleik þegar Framarar gerðu þriðja markið og það sem reyndist sigurmark. Það skoraði Alda Ólafsdóttir eftir óvenjulega en vel útfærða hornspyrnu, þótt varnarmenn Þórs/KA hefðu vissulega átt að geta gert getur.

Seinni hluta leiksins sótti Þór/KA meira, náði nokkrum sinnum að skapa hættu við mark Framara en hafði ekki erindi sem erfiði.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni