Fara í efni
Þór

Njarðvíkingar reyndust einu númeri of stórir

Lore Devos í leiknum í kvöld. Hún gerði 21 stig og tók 8 fráköst. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Þór tapaði fyrir Njarðvík í kvöld, 78:65, í Subway deild kvenna, efstu deild Íslandsmótsins í körfubolta. Fyrri hálfleikur í Höllinni á Akureyri var jafn og gestirnir aðeins fjórum stigum yfir í hálfleik en frammistaða beggja liða í þriðja leikhluta skipti sköpum.

  • Skorið eftir leikhlutum:  13:17 – 16:16 – (29:33) – 17:28  – 19:17 – 65:78

Þórsarar voru reyndar klaufar að vera ekki með forystu í hálfleik því þeir misstu boltann nokkrum sinnum afar klaufalega á lokakafla annars leikhluta eftir góða frammistöðu þangað til. 

Þetta var fjórði sigur Njarðvíkinga í röð í deildinni. Þór hefur unnið tvo en tapað þremur.

Frammistaða Þórsara í kvöld:

  • Lore Devos 21 stig – 8 fráköst – 3 stoðsendingar
  • Madison Sutton 13 stig – 18 fráköst – 1 stoðsending
  • Eva Wium Elíasdóttir 14 stig – 1 frákast – 5 stoðsendingar
  • Heiða Hlín Björnsdóttir 4 stig – 3 fráköst – 1 stoðsending
  • Hulda Ósk Bergsteinsdóttir 4 stig – 3 fráköst
  • Jovanka Ljubetic 8 stig – 2 fráköst – 1 stoðsending
  • Hrefna Ottósdóttir 1 stig – 1 frákast – 1 stoðsending

Smellið hér til að sjá alla tölfræðina úr leiknum.