Fara í efni
Þór

Mega ekki missa sig í stressi og vitleysu

Erlingur Kristjánsson í Fjölmiðjunni, þar sem hann er forstöðumaður. Erlingur er eini íþróttamaður Íslandssögunnar sem hefur tekið við bæði Íslandsbikarnum í fótbolta og handbolta sem fyrirliði. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Erlingur Kristjánsson, fyrrverandi fyrirliði handknattleiks- og knattspyrnuliða KA, var að vonum ekki ánægður þegar hans menn töpuðu fyrir Þór í handboltanum á miðvikudagskvöldið. Hann vonast hins vegar eftir því að KA nái fram hefndum annað kvöld með því að vinna fallslaginn gegn Þór í Bestu deild karla í fótboltanum.

Þá mætast Akureyrarliðin í 24. umferð deildarinnar undir flóðljósunum á nýja KA-vellinum klukkan 19.30 en það verður annar leikur KA á vellinum. Sá fyrsti var að sjálfsögðu heimaleikurinn gegn Þór í lok júlí þegar liðin gerðu markalaust jafntefli.

Eins og Akureyringar þekkja er Erlingur eini íþróttamaður Íslandssögunnar sem hefur tekið við bæði Íslandsbikarnum í fótbolta og handbolta sem fyrirliði, en það afrekaði hann með KA í fótboltanum árið 1989 og í handboltanum árið 1997. Í bæði skiptin var um fyrsta Íslandsmeistaratitil KA að ræða og í fótboltanum þann eina til þessa.

Íslandsmeistari sem fyrirliði! Erlingur með Íslandsbikarinn í knattspyrnu 1989 og Íslandsbikarinn í handknattleik 1997.

Því miður guggnuðu þeir í lokin

Erlingur var að sjálfsögðu í KA-heimilinu þegar KA tók á móti Þór í handboltanum á miðvikudagskvöldið og var ekki sáttur við niðurstöðuna því Þórsarar höfðu betur í hörkuleik, 35-31.

„Já, ég var á staðnum sem starfsmaður KA á leiknum, sem ég er oftast á heimaleikjunum, bæði hjá körlunum og konunum, en vissulega sleppi ég einum og einum leik. KA byrjaði ágætlega en svo var þetta jafn leikur og hörkuleikur. Því miður þá guggnuðu okkar menn í lokin og Þórsarar náðu að landa sigrinum. Menn héldu ekki alveg haus þegar mest á reyndi,“ sagði Erlingur þegar akureyri.net heimsótti hann í Fjölsmiðjuna, þar sem hann er forstöðumaður, og tók undir að það væri alltaf meira í húfi en bara stigin þegar Akureyrarliðin eigast við.

„Þetta tap hefur kannski ekki úrslitaáhrif á heildarniðurstöðu liðanna í deildinni en leikir KA og Þórs skipta alltaf miklu meira máli en það. Þetta er í fyrsta sinn í einhverja áratugi sem KA tapar fyrir Þór í efstu deild karla. Sjálfur tapaði ég aldrei fyrir Þór en man eftir því að einhverjir leikir enduðu með jafntefli þar sem KA-menn voru lúsheppnir að ná í stig. En liðin hafa ekki oft verið í sömu deild og svo léku þau saman undir nafni Akureyrar í rúman áratug,“ sagði Erlingur.

Erlingur (númer 5) skallar boltann í mark Þórs þegar liðin mættust í bikarkeppninni í fótbolta sumarið 1980. Þarna jafnaði hann 2:2 með skalla seint í leiknum og KA sigraði 3:2 með marki í framlengingu.

Svo framarlega sem við vinnum

Þess ber að geta að akureyri.net náði að grafa upp einn sigur Þórs í viðureign gegn KA í efstu deild í október 2002, þá 21-20 í KA-heimilinu þar sem Páll Viðar Gíslason fór á kostum og skoraði níu mörk fyrir Þór en Arnór Atlason og Andrius Stelmokas sjö mörk hvor fyrir KA.

Erlingur tók undir það að miklu skipti fyrir handboltann á Akureyri að vera með bæði félögin í efstu deild.

„Það er alltaf gott, þá er meiri stemning í bænum og allir hafa miklu meiri áhuga á handboltanum. Það er því besta mál að spila sem oftast við Þórsara, svo framarlega sem við vinnum! En það gengur ekki alltaf allt upp.“

Þurfum að skoða málin aðeins betur

Hvað finnst þér um KA-liðið í dag og möguleika þess í vetur?

KA-liðið er alveg ágætt núna og ég hef ágætis tilfinningu fyrir því. En við verðum að átta okkur á því að sennilega byrjuðum við tímabilið á því að vinna tvö af slökustu liðunum í deildinni (HK og Víking) þannig að þeir sigrar segja ekki mikið. Svo var þriðji leikurinn gegn Þór og hann tapaðist, og þá þurfum við að skoða málin aðeins betur.

Liðinu gekk vel í fyrra, þar voru nokkrir leikmenn sem spiluðu mjög vel og þeir verða vonandi jafngóðir í vetur. Það var gott að fá Dag Árna Heimisson aftur, hann er mjög góður og það hefði verið fínt að hafa hann í fyrravetur. En svo misstum við einn ungan og góðan í síðustu viku þegar Magnús Dagur Jónatansson fór í ÍBV. Hann hefði nýst vel í leik eins og þessum gegn Þór.

Þórsarinn Halldór Áskelsson og Erlingur Kristjánsson berjast um boltann í deildarleik á Akureyrarvelli í september 1987. Leikurinn fór 1:1 og það var Halldór sem gerði mark Þórs.

Sorglegt að vera að spila um fallið

Seinni leikur KA og Þórs í þessari viku er svo botnslagurinn í fótboltanum á KA-vellinum annað kvöld, aðeins þremur dögum eftir sigur Þórs í handboltaleiknum. Erlingur sagði leikina ólíka að því leyti að nú væri allt undir.

„Þetta er bara úrslitaleikur fyrir bæði liðin. Ef KA-menn tapa þessum leik held ég að þeir eigi ekki mikla möguleika á að halda sér í Bestu deildinni. Þetta er svo sem eins með Þórsara, ef þeir tapa er KA komið upp fyrir þá og þar með væru þeir ekki í neitt sérstakri stöðu. Þar með er þetta ekki bara venjulegur nágrannaslagur milli KA og Þórs því það er svo mikið í húfi.“

Spurður við hvernig leik mætti búast sagði Erlingur að ómögulegt væri að segja hvernig menn væru innstilltir þegar þeir kæmu til leiks.

„Menn vita hvað er í húfi og þurfa að gæta þess að missa sig ekki í stressi og vitleysu, sem auðvitað getur gerst í svona leikjum. En það er sorglegt að vera að spila nánast um fallið í svona leik.“

Erlingur, lengst til hægri, ásamt Jónatan Þór Magnússyni og markverðinum Herði Flóka Ólafssyni, þegar KA lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta við Hauka vorið 2001. 

Spiluðu vel en töpuðu

Hefurðu fylgst vel með KA í sumar og áttu einhverjar skýringar á því hvers vegna gengi liðsins hefur verið talsvert undir væntingum?

Já, ég hef fylgst ágætlega með liðinu. Ef maður vissi nú hver skýringin væri – það hefur víst hver sína skoðun á því. Í fyrstu leikjunum í vor spilaði KA mjög vel en tapaði samt hvað eftir annað. Til dæmis gegn Stjörnunni, Víkingi og Val í leikjum sem við áttum að vinna, kannski þó ekki gegn Víkingi. En svo þegar fer að ganga illa er oft rosalega erfitt að snúa því við.

Svo er lið KA sem spilar núna í haust ekki sama liðið og spilaði fyrstu leikina í vor. Það vantar fjóra til sex menn sem áttu að bera liðið uppi. Sumir hafa ekki staðið undir væntingum og aðrir hafa meiðst og forfallast á ýmsan máta. En þetta reynir á menn og nú þurfa allir að vera tilbúnir.

Hefurðu skynjað breytingar eftir að Eiður Smári Guðjohnsen kom inn í þjálfarateymið hjá KA?

„Nei, ekki beint svona utan frá. En strákarnir tala um að það hafi verið til bóta að fá hann og vonandi nýtast hans reynsla og þekking í þessum síðustu leikjum á tímabilinu.“

Erlingur, lengst til vinstri, í leik KA og ÍA í 1. umferð efstu deildar Íslandsmótsins á Sanavellinum laugardaginn 16. maí 1981.

Verður sennilega í sveitinni

Þú verður væntanlega á vellinum?

„Ja, ég veit ekki einu sinni hvort ég verði í bænum. Sveitastörfin kalla og ég gæti þurft að taka til hendinni þar. Konan mín er úr sveit og við erum mikið þar að hjálpa bóndanum, það gæti því vel verið að ég tæki það fram yfir KA og Þór. En ég mun fylgjast með leiknum á einhvern hátt.“

Viltu spá um úrslitin?

Nei, ég held að ég sleppi því, ég hef aldrei verið góður spámaður! Svo þýðir ekkert að spá þegar maður vonar heitt og innilega að úrslitin verði á annan veginn því þá vill spáin verða lituð af því.

Ég vona auðvitað fyrst og fremst að KA nái að bjarga sér frá falli en það er því miður ekki nógu bjart yfir því. Það getur auðvitað bæði verið gott og vont að falla, stundum er hægt að taka til í málunum ef menn falla, en svo getur verið ansi erfitt að komast upp aftur. Sagan segir það – svo það myndi hafa bæði kosti og galla,“ sagði Erlingur Kristjánsson.