Fara í efni
Þór

Lið Þórs/KA sækir Íslandsmeistarana heim

Birgitta Rún Finnbogadóttir í kapphlaupi við Edith Kristínu Kristjánsdóttur í fyrri leik liðanna í vor. María Dögg Jóhannesdóttir fylgist með. Mynd: Ármann Hinrik.

Þegar öll liðin í Bestu deild kvenna hafa spilað 12 leiki situr Þór/KA í 8. sætinu með 12 stig og komst úr fallsæti í fyrsta skipti frá því í upphafi móts með sigri á ÍBV í síðasta leik. Keppni í neðri hluta deildarinnar er gríðarlega jöfn og spennandi og munar aðeins fimm stigum á liðinu í 5. sæti, sem er Grindavík/Njarðvík, og liðinu í 10. sæti, sem er Víkingur. Ásamt Víkingi er Valur í fallsæti með tíu stig, þar fyrir ofan er Þór/KA með 12, Fram og Þróttur með 13 stig og Grindavík/Njarðvík með 15.

Hjá Þór/KA er komið að heimsókn í Kópavoginn, en Breiðablik er í 2. sæti deildarinnar með 27. stig. Þessi lið mættust á Akureyri í maí og hafði Breiðablik þar betur, 3-1.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 14. umferð
    Kópavogsvöllur kl. 18
    Breiðablik - Þór/KA

Breiðablik vann risasigur á Val að Hlíðarenda í síðustu umferð, 7-1. Þór/KA vann ÍBV á heimavelli eins og áður sagði, 2-1, með mörkum frá Erin Flurey og Bríeti Jóhannsdóttur.