Fara í efni
Þór

KA/Þór tapaði og er komið í sumarfrí

Bergrós Ásta Guðmundsdóttir (10) reynir að brjótast í gegnum vörn Hauka í kvöld, samherji hennar til hægri er Elsa Björg Guðmundsdóttir. Myndir: Þórir Tryggvason

KA/Þór fékk Hauka í heimsókn í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni efstu deildar kvenna í handknattleik í kvöld. Heimaliðið þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að knýja fram oddaleik í einvíginu en Haukastúlkur voru númeri of stórar að þessu sinni. Haukar unnu leikinn 25:20 og einvígið 2:0. KA/Þór er þar með komið í sumarfrí.

KA/Þór byrjaði leikinn vel og hafði forystuna lengi framan af fyrri hálfleik. Í stöðunni 10:6 hrukku Haukar hins vegar í gang og gerðu 8 mörk gegn aðeins einu á síðustu 10 mínútum hálfleiksins. Staðan 14:11 Haukum í vil í leikhléi.

Haukar gáfu engin færi á sér í seinni hálfleik og hleyptu KA/Þór aldrei nálægt. Forystan var yfirleitt 4-6 mörk og þegar flautað var til leiksloka var munurinn 5 mörk, 25:20.

Að undanskildum fyrstu 20 mínútum leiksins náði KA/Þór sér ekki á strik í þessum leik og lítið féll með liðinu. Susanne var markahæst með  5 mörk, öll í fyrri hálfleik, en skotnýtingin var afleit. Markvarslan var engin, Bernadett varði eitt skot snemma leiks en síðan ekki söguna meir. Gamla brýnið Selma Sigurðardóttir kom í markið undir lok leiks og varði eitt skot. Þá misnotaði liðið öll þrjú vítaköst sín í leiknum.

Eins og áður segir þýða þessi úrslit að KA/Þór er úr leik í Olísdeildinni og liðið komið í sumarfrí. Haukarnir mæta ÍBV í undanúrslitaviðureign.

Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 5, Trude Blestrud Hakonsen 4, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 4, Kristín A. Jóhannsdóttir 3, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 2, Tinna Valgerður Gísladóttir 1, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1.

Varin skot: Bernadett Leiner 1, Selma Sigurðardóttir 1.

Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 5 (3 víti), Sonja Lind Sigsteinsdóttir 5, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 4, Inga Dís Jóhannsdóttir 3, Alexandra Líf Arnarsdóttir 2, Sara Marie Odden 1, Aníta Eik Jónsdóttir 1.

Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 9 (1 víti), Elísa Helga Sigurðardóttir 3.

Öll tölfræði leiksins hjá HBStatz

Susanne Denise Pettersen var markahæst í liði KA/Þórs í dag – gerði 5 mörk.