Fara í efni
Þór

KA/Þór fær enn meiri færeyskan liðsauka

Blekið í samningapennanum í KA-heimilinu hefur ekki fengið að þorna í þessari viku en í dag kynnti KA/Þór þriðja nýja leikmanninn til sögunnar. Að þessu sinni var það hin færeyska Joan Rúnadóttir Johannesen sem skrifaði undir samning við félagið.

Í frétt á vefsíðu KA kemur fram að Joan sé spennandi örvhentur leikmaður sem leikur í hægra horninu. Hin 19 ára Joan kemur til KA/Þórs frá Kyndil í Færeyjum, þar sem hún hefur leikið mestallan sinn feril. Með Kyndil hefur hún m.a. orðið færeyskur meistari og bikarmeistari.

Joan er fastamaður í yngri landsliðum Færeyja en rétt eins og Agatha Djurhuus, stalla hennar frá Færeyjum sem skrifaði undir hjá KA/Þór í vikunni, er hún farin að banka fast á dyr A-landsliðsins þar sem hún hefur komið inn í æfingahóp í nokkur skipti. Eins og kunnugt er hefur færeyskur handbolti verið í mikilli sókn undanfarin ár og þær munu eflaust verða góður liðsstyrkur fyrir lið KA/Þórs í baráttunni næsta vetur.