Fara í efni
Þór

Handbolti: Þriðja tapið hjá KA/Þór

Joan Rúnadóttir Johannesen náði sér ekki á strik í sókninni í dag frekar en liðsfélagar hennar. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson.

KA/Þór sótti ekki gull í greipar ÍR í 3. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag. Heimastúlkur náðu snemma öruggri forystu og héldu henni allan leikinn. Lokatölur urðu 23:16 fyrir ÍR, sem hefur unnið fyrstu þrjá leiki sína í deildinni en KA/Þór tapað sínum fyrstu þremur.

Sóknarleikur KA/Þórs gekk afar brösuglega í dag. Fyrsta mark þeirra kom ekki fyrr en eftir tæplega 10 mínútna leik en þá hafði ÍR skorað þrjú. Eftir fyrsta mark Þórs/KA komu önnur þrjú frá ÍR og staðan orðin 6:1. Þessi munur hélst þar til staðan var orðin 10:5 og um 10 mínútur eftir af fyrri hálfleik. Meira var ekki skorað það sem eftir lifði hálfleiksins og munaði þar mest um stórleik Ástrósar Bender Mikaelsdóttur í mark KA/Þórs. Hún varði alls 8 skot í fyrri hálfleik og kom í veg fyrir að munurinn væri ennþá meiri í leikhléi. 

Sóknarleikurinn gekk ekki upp í dag

ÍR gaf fá færi á sér í seinni hálfleik og gerði það sem gera þurfti til að halda forystunni í 5-7 mörkum allt til leiksloka. Lokatölur urðu 23:16 ÍR í vil og líkt og í fyrri hálfleik var lítið skorað undir lok hálfleiksins. KA/Þór gerði síðasta mark leiksins og það var eina markið sem skorað var síðustu 10 mínúturnar.

Munurinn á liðunum í þessum leik var fyrst og fremst sá að lítið sem ekkert gekk upp í sóknarleik KA/Þórs, gegn sterkri ÍR-vörn, á meðan KA/Þór gekk illa að stöðva helstu markaskorara heimaliðsins. Þær Sara Dögg Hjaltadóttir og Matthildur Lilja Jónsdóttir skoruðu 18 af 23 mörkum ÍR. Samkvæmt tölfræði úr leiknum frá HBStatz voru varnarmenn ÍR með 33 stöðvanir og 10 stolna bolta en KA/Þór með 15 stöðvanir og 1 stolinn bolta og það segir mikið um muninn á liðunum.

Næsti leikur KA/Þórs í deildinni verður föstudagskvöldið 2. október þegar margfaldir meistarar Vals koma í heimsókn.

Mörk KA/Þórs: Sólveig Lára Kristjánsdóttir 4, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 3, Joan Rúnadóttir Johannessen 3 (2 víti), Agatha Kjærbæk Djurhuus 2, Lenka Ratvajská 2 (1 víti), Herdís Eiríksdóttir 1, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 1.

Varin skot: Ástrós Bender Mikaelsdóttir 10, Ingibjörg Lovísa Hauksdóttir 4.

Mörk Hauka: Sara Dögg Hjaltadóttir 12 (4 víti), Matthildur Lilja Jónsdóttir 6, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 2, Anna María Aðalsteinsdóttir 1, Erla María Magnúsdóttir 1, Sylvía Sigríður Jónsdóttir 1.

Varin skot: Ingunn María Brynjarsdóttir 7, Elísa Helga Sigurðardóttir 2, Sif Hallgrímsdóttir 1.