Fara í efni
Þór

Gleði í Hamri: Eitt stykki íþróttamiðstöð!

Gleðistund í Hamri! Nói Björnsson, formaður Þórs, og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri við undirskrift samningsins í dag. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Bæjarstjórinn á Akureyri og formaður Íþróttafélagsins Þórs, Ásthildur Sturludóttir og Nói Björnsson, undirrituðu í dag samkomulag um uppbyggingu íþróttamiðstöðvar á félagssvæði Þórs, við hátíðlega athöfn í félagsheimilinu Hamri. Bæjarráð Akureyrar samþykkti samkomulagið á fimmtudaginn en með undirritun má segja að endanlega og formlega sé ljóst að langþráður draumur Þórsara um íþróttahús verði að veruleika. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið til notkunar árið 2031.

  • Ítarlega var fjallað um fyrirhugaðar framkvæmdir á akureyri.net á fimmtudaginn. Smellið á rauðlituðu fyrirsögnina til að lesa þá frétt:

Þór fær íþróttahús – tekið í notkun 2031

Nokkrir punktar úr fréttinni á fimmtudag:

  • Iðkendur hjá Þór stunda í dag æfingar á fimm stöðum í bænum utan félagssvæðisins. Í minnisblaði Akureyrarbæjar um verkefnið kemur fram að félagið búi við þá sérstöðu að 45% af iðkendum á aldrinum 5 til 19 ára geti ekki sótt æfingar á Þórssvæðinu.
  • Gólfflötur íþróttasalarins verður 2.300 - 2.500 fermetrar og mun rúma tvo löglega handboltavelli.
  • Í byggingunni verður aðstaða fyrir allar deildir Þórs, samkomusalur, skrifstofur og fundarrými, svo sumt sé nefnt.
  • Frumkostnaðaráætlun gerir því ráð fyrir að mannvirkið kosti frá 3 milljörðum til 4,5 milljarða á verðlagi janúar 2026.

Hópur Þórsara fylgdist með undirskriftinni í Hamri í dag.

Sennilega er ekki boðið upp á rjómatertu á hverjum degi í Hamri, en ein slík var á boðstólum í dag ásamt fleira góðgæti, enda mikill gleðidagur í herbúðum Þórsara – og Nói Björnsson fór í sitt fínasta formannspúss í tilefni dagsins. Ásthildur bæjarstjóri Sturludóttir sker fyrstu sneið af rjómatertunni.