Fara í efni
Þór

Fram undan: Fjölbreytt úrval íþróttakappleikja

Framboðið að íþróttakappleikjum næstu daga er mikið, sjö heimaleikir og fimm útileikir hjá Akureyrarliðum. Evrópuleikur í fótbolta, deildar- og bikarleikir í handtolba, botnbaráttuleikir í fótbolta, fyrstu heimaleikir KA-kvenna í blaki, heimaleikir í körfubolta og hörkuslagur í íshokkí. Allt þetta á fimm dögum frá miðvikudegi fram á sunnudag.

  • Körfubolti: Þriðja umferð 1. deildar karla í körfubolta er fram undan. Þórsarar voru hársbreidd frá því að vinna Hamar í Hveragerði í annarri umferðinni, en eins stigs sigur datt hinum megin. Næstu mótherjar eru úr Kópavoginum, Breiðablik kemur norður með sitt lið á fimmtudag. Blikar hafa unnið einn og tapað einum leik.
  • Handbolti: Föstudagurinn er handboltadagur og eiga bæði karlalið Akureyrar í Olísdeildinni útileik. Þórsarar fara til Vestmannaeyja og mæta ÍBV, en bæði liðin hafa unnið tvo leiki og tapað þremur. KA, sem hefur unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum og er í 2. sæti deildarinnar, sækir Stjörnuna heim í Garðabæinn. Stjarnan er í 10. sæti deildarinnar með þrjú stig úr fyrstu fimm leikjunum.
  • Handbolti: Eyjaheimsókn Handboltaþórsara er óvenjuleg að þessu sinni því þeir spila einnig leik á laugardaginn. Sá leikur er gegn ÍBV 2 í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar. Sá leikur var upphaflega settur á viku fyrr, en Þórsarar vildu fækka Eyjaferðunum og taka báða leikina í sömu ferðinni.
  • Blak: Það er einnig tveggja leikja helgi hjá kvennaliði KA í blaki. Fyrstu heimaleikirnir á dagskránni hjá KA-konum um helgina þegar þær mæta liði HK/Ýmis bæði á laugardag og sunnudag. Hér er ekki um Íslandsmeistarana að ræða heldur lið númer tvö úr Kópavoginum. KA er á toppi deildarinnar með sex stig eftir tvo leiki, hefur unnið þá báða 3-0.
  • Fótbolti: Laugardagurinn verður spennuþrunginn í karlafótboltanum. Tveimur umferðum er ólokið í neðri hlutanum og orðið ljóst að annaðhvort Akureyrarliðanna mun falla. KA hefur örlögin í sínum höndum, en Þór verður að ná sér í að minnsta kosti þrjú stig í þeim leikjum sem liðið á eftir og um leið að treysta á að grannarnir tapi stigum. KA er í 10. sæti deildarinnar með 26 stig að loknum 25 umferðum, en Þór er í 11. sætinu, fallsæti, með 24 stig úr jafn mörgum leikjum. Þór mun ekki nægja að ná KA að stigum vegna óhagstæðrar markatölu heldur þarf liðið að ná í fleiri stig en KA til að forðast fall. Þór á annan heimaleikinn í röð og fær Stjörnuna í heimsókn norður, en á sama tíma sækir KA Val heim að Hlíðarenda. Úrslitin gætu ráðist í þessari umferð, það er ef Þór tapar og KA nær í stig. 
  • Íshokkí: Það verður toppslagur í Skautahöllilnni á Akureyri á laugardag þegar SA Víkingar taka á móti Íslandsmeisturum SR á laugardaginn. Lið Skautafélags Reykjavíkur hefur verið erfitt við að eiga nokkuð lengi og hefur raunar ekki tapað leik í deildar- eða úrslitakeppni á árinu 2026. Samtals hefur Reykjavíkurliðið unnið 14 leiki í röð í deildar- og úrslitakeppnum, þar af sjö gegn SA. SR tapaði síðast deildarleik 16. desember í fyrra, heimaleik gegn SA Víkingum, reyndar ekki fyrr en eftir maraþon leik, framlengingu og vítakeppni þar sem þurfti 18 víti til að skera úr um sigurvegara. Þremur dögum fyrr hafði SA einnig unnið SR, 5-4, en í framlengingu í það skiptið. Síðasti leikur sem SR tapaði í deildarkeppninni, í venjulegum leiktíma, var gegn SA í Skautahöllinni á Akureyri 15. nóvember í fyrra, en sá leikur endaði 5-4 fyrir SA. Stuðningsfólki SA hlýtur því að finnast kominn tími á að stöðva sigurgöngu Reykjavíkurliðsins og tryggja sigur á laugardaginn.
  • Handbolti: Handboltakonum Akureyrar hefur ekki gengið sem best í upphafi Olísdeildar kvenna í haust. KA/Þór tekur á móti Stjörnunni á laugardag og mætast þar tvö neðstu lið deildarinnar. KA/Þór er enn án stiga að loknum fimm umferðum, en Stjarnan er með tvö stig í sætinu fyrir ofan. KA/Þór tapaði fyrir Gróttu á útivelli í síðustu umferð, en Stjarnan tapaði heimaleik gegn HK. 
  • Körfubolti: Kvennalið Þórs í körfubolta vann stórsigur á Skallagrími á útivelli í annarri umferð 1. deildar, eftir naumt tap fyrir Þorlákshafnarþór í fyrstu umferðinni. Á sunnudag er komið að heimaleik hjá Þór, sem tekur á móti KV. 

MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER - fótbolti

Seinni leikur Þórs og Žalgiris frá Litháen í Evrópudeild ungmenna, UEFA Youth League, fer fram á miðvikudag. Litháíska liðið vann fyrri leikinn sem fram fór á Akureyri 16. september. Lokatölur í þeim leik urðu 3-4.

  • Fótbolti
    Evrópudeild ungmenna - UEFA Youth League
    FK Žalgiris stadium í Vilnius kl. 16
    Žalgiris - Þór

Sigurvegarinn úr tveggja leikja einvígi Þórs og Zalgiris mætir St. Patrick's Athletic frá Írlandi í næstu umferð, 28. október og 4. nóvember, 

FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER - körfubolti

Karlalið Þórs í körfuboltanum á heimaleik á fimmtudag, tekur þá á móti Breiðabliki. Þórsarar eru án sigurs eftir tvær fyrstu umferðirnar.

  • Körfubolti
    1. deild karla, 3. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 19:15
    Þór - Breiðablik

FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER - handbolti

Fyrri leikur karlaliðs Þórs í handboltanum þessa helgina er á dagskrá í Eyjum á föstudagskvöld.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 6. umferð
    Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum kl. 18
    ÍBV - Þór

KA hefur byrjað vel í Olísdeild karla í handbolta og sækir Stjörnuna heim í sjöttu umferðinni á laugardag.

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 6. umferð
    Hekluhöllin í Garðabæ kl. 18:30
    Stjarnan - KA

LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER - blak, íshokkí

Fyrstu heimaleikir kvennaliðs KA í blaki eru á dagskrá um komandi helgi. Farið verður yfir komandi vetur hjá KA-konum í sérstökum upphitunarpistli þegar þar að kemur.

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    KA-heimilið kl. 13:30
    KA - HK/Ýmir

Örlög gætu ráðist í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn, en spennan gæti líka haldið áfram og úrslitin ekki ráðist fyrr en í lokaumferðinni á fyrsta vetrardag. Þór tekur á móti Stjörnunni og þarf á sigri eða að minnsta kosti stigi að halda í erfiðri botnbaráttu.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 26. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigras á Ásnum) kl. 14
    Þór - Stjarnan

KA sækir Val heim og má segja að KA-liðið hafi örlögin í sínum höndum. Ekki þó víst að örlögin ráðist þessa helgina.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti, 26. umferð
    Valsvöllur (N1 völlurinn að Hlíðarenda) kl. 14
    Valur - KA

Seinni leikur Þórsara í tveggja leikja heimsókn til Vestmannaeyja. Bikarleikur gegn ÍBV 2 á dagskrá á laugardag.

  • Handbolti
    Powerade-bikarinn, 16 liða úrslit
    Íþróttamiðstöðin í Vestmannaeyjum kl. 16:30
    ÍBV 2 - Þór

Alltaf hörkuslagir þegar SA Víkingar og lið Skautafélags Akureyrar mætast. 

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
    SA - SR

Tvö neðstu lið Olísdeildar kvenna mætast í sjöttu umferð deildarinnar í KA-heimilinu á laugardag og þarf Akureyrarliðið sárlega á því að ná sér í fyrstu stig haustsins.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 6. umferð
    KA-heimilið kl. 17
    KA/Þór - Stjarnan

SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER - blak

Seinni blakleikur helgarinnar á dagskrá í KA-heimilinu á sunnudag.

  • Blak
    Unbroken-deild kvenna
    KA-heimilið kl. 14:00
    KA - HK/Ýmir

Kvennalið Þórs í körfubolta tekur á móti Vesturbæingunum í KV á sunnudag.

  • Körfubolti
    1. deild kvenna, 3. umferð
    Íþróttahöllin á Akureyri kl. 15
    Þór - KV

Stöður í deildum og leikjadagskrár

Blak

Fótbolti

Handbolti

Íshokkí

Körfubolti 


Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net – sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.