Fara í efni
Þór

Forgangsröðunin er í Umferðaröryggisáætlun

Ekið niður Oddeyrargötu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Farið hefur verið í ýmsar framkvæmdir undanfarin ár þó svo íbúunum finnist ekki nóg að gert, en það eru fjölmargir staðið innan bæjarins þar sem talið er nauðsynlegt að fara í úrbætur eins og sjá má í Umferðaröryggisáætlun Akureyrarbæjar. Með því er þó ekki verið að segja að ástandið í Oddeyrargötunni sé gott heldur að það séu aðrir staðir innan bæjarins sem talið er nauðsynlegt að beina athyglinni að þegar kemur að umferðaröryggi.

Þetta kemur fram í svari Péturs Inga Haraldssonar, sviðsstjóra skipulagssviðs Akureyrarbæjar, við fyrirspurn akureyri.net í framhaldi af frétt um pistil Aðalsteins Svans Hjelm um hraðahindranir og umferðaröryggi í Oddeyrargötunni, sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær.

Láta reyna á ökutækin í Oddeyrargötunni

Tilefni skrifa Aðalsteins í gær var að hraðahindranir sem settar höfðu verið upp til bráðabirgða hafa verið fjarlægðar. „Wúhú! Nú geta akureyrskir ökuþórar andað léttar. Bráðabirgðahraðahindranirnar sem settar voru upp í sumar í Oddeyrargötu hafa verið fjarlægðar og umferðin farin að láta á sér kræla á ný,“ skrifaði hann meðal annars.

Aðalsteinn hefur bent á að Oddeyrargatan sé vinsæl meðal ökumanna til að láta reyna á kraft og snerpu ökutækja sinna og með því að gefa þeim nægt svæði á milli hraðahindrana sé hættunni boðið heim. Ökumenn nýti jafnframt Oddeyrargötuna, þrönga íbúagötu þar sem á köflum er aðeins gangstétt örðu megin, til að stytta sér leið í stað þess að aka um Þórunnarstrætið, sem er stofnbraut. Honum hefur ekki fundist nóg að gert af hálfu Akureyrarbæjar til að tryggja öryggi íbúa og gangandi vegarenda í götunni. 

Ýmsar framkvæmdir í Oddeyrargötunni

Akureyri.net leitaði viðbragða hjá Akureyrarbæ vegna pistils Aðalsteins og fréttar málið í gær. Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri skipulagssviðs, segir í skriflegu svari að Akureyrarbær fái á hverju ári fjölmargar athugasemdir og ábendingar um það sem betur megi fara í tengslum við umferðaröryggi í bænum.

Ýmsir staðir innan bæjarins eru á forgangslista þegar kemur að nauðsynlegum úrbótum í umferðaröryggismálum, meðal annars gatnamót Borgarbrautar og Dalsbrautar. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

„Allar þessar ábendingar eru skoðaðar og notaðar sem hluti af forsendum ákvarðanatöku þegar framkvæmdum í bænum er forgangsraðað í samræmi við það fjármagn sem er til staðar fyrir málaflokkinn. Núna liggur fyrir samþykkt umferðaröryggisáætlun og mun hún hafa áhrif á hvaða framkvæmdir eigi að fara í á næstu misserum,“ segir Pétur Ingi og vísar til Umferðaröryggisáætlunar Akureyrarbæjar 2025-2030. 

„Varðandi Oddeyrargötuna að þá er búið að fara í ýmsar framkvæmdir undanfarin ár þó svo að sumum íbúum finnst ekki nóg að gert. Það er búið að lagfæra gatnamót við Brekkugötu, setja upp skilti sem sýnir hraða og lagfæra hraðahindrun við Bjarmastíg.“

Í 8. kafla Umferðaröryggisáætlunar Akureyrarbæjar 2025-2030, sem ber yfirskriftina „Framkvæmdaáætlun og forgangsverkefni “er meðal annars að finna þessa mynd þar sem merktir eru inn fjölmargir staðir innan bæjarins þar sem þörf er talin á úrbótum í umferðaröryggismálum. Í kaflanum er jafnframt langur listi yfir verkefni þar sem þörf er úrbóta vegna óvarinna vegfarenda.

Úrbóta þörf á fjölmörgum stöðum

Til skýringar vísar Pétur á mynd í umferðaröryggisáætluninni. „Eins og sjá má þegar flett er í gegnum umferðaröryggisáætlunina eru fjölmargir staðir innan Akureyrar sem talið er nauðsynlegt að fara í úrbætur á og í kafla 8 (bls. 75) er fjallað um forgangsverkefni. Þar er m.a. mynd sem sýnir staði í fyrsta forgangi og má sjá að Oddeyrargatan er ekki þar. Með þessu er ekki verið að segja að ástandið sé gott í Oddeyrargötu heldur að það séu aðrir staðir innan bæjarins sem við teljum nauðsynlegt að beina athyglinni að þegar kemur að umferðaröryggi,“ segir Pétur Ingi Haraldsson, sviðsstjóri skipulagssviðs Akureyrarbæjar.