Fara í efni
Þór

Enn fyllist bærinn af fótboltastrákum

Daníel Dejan Djuric með Breiðabliki í leik gegn Fylki á N1 mótinu sumarið 2015. Hann var valinn besti sóknarleikmaður argentínsku deildarinnar, eins og keppni A-liðanna er kölluð. Daníel leikur nú með KA sem kunnugt er. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Á morgun hefst árlegt fótboltamót KA fyrir stráka í 5. flokki, eitt allra fjölmennasta íþróttamót landsins ár hvert, og fer nú fram í 40. skipti! Áætlað er að hátt í 1800 strákar frá um 40 félögum víðs vegar af landinu taki þátt í ár og framundan eru hátt í eitt þúsund leikir.

Keppni hefst í hádeginu á morgun og strákarnir verða að frá morgni til kvölds næstu daga en þessari miklu hátíð lýkur síðdegis á laugardag.

  • Margir kunnir kappar hafa tekið þátt í mótinu á 40 árum eins og nærri má geta. Sá sem þetta skrifar grúskaði um stund í myndasafni sínu, á myndinni að ofan er Daníel Dejan Djuric árið 2015 og hér að neðan má sjá fleiri skemmtilegt sýnishorn!

Það var árið 1987 sem KA-menn og Olíufélagið hf., umboðsaðili Esso á Íslandi, tóku höndum saman og komu mótinu á laggirnar. Það kallaðist Essó mót fyrstu tvo áratugina en breyttist eftir að nafni fyrirtækisins var breytt í N1 árið 2007.

Sveinn Aron Guðjohnsen, til hægri, tók þátt í N1 mótinu árið 2009 með HK. Hann er sonur Eiðs Smára, eins besta knattspyrnumanns Íslands fyrr og síðar. Sveinn Aron hefur víða komið við á ferlinum og er nú á mála hjá Cavese á Ítalíu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Á fyrsta mótið mættu 15 lið frá átta félögum en undfarin ár hafa liðin verið um 200 frá 40 félögum. „Keppendur eru á bilinu 1.700–1.800 og á aðeins fjórum dögum eru leiknir hátt í eitt þúsund leikir. Mikillar spennu gætir fyrir mótið hjá þátttakendum og fjölskyldum, þá bæði fyrir samverunni, leikjum og ferðalaginu norður,“ segir í tilkynningu frá KA og N1 um mótið.

„N1 mótið hefur fest sig í sessi sem eitt stærsta fótboltamót sumarsins og koma krakkar og fjölskyldur þeirra alls staðar af landinu til að keppa fyrir sín lið. Frá því að fyrsta mótið fór fram 1987 hafa tugþúsundir barna komið saman á Akureyri, keppt fyrir sitt félag, eignast vini og skapað minningar sem margir búa að alla ævi.“

Kári Kristjánsson, til hægri, fyrirliði Þróttar á N1 mótinu árið 2015. Hann er í dag einn lykilmanna í liði Þróttar sem trónir á toppi Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar Íslandsmótsins. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Leikirnir gleymast en tilfinningin situr eftir

Gunnar Helgi Kristinsson, 12 ára, mun keppa í annað skipti í ár fyrir hönd Gróttu. Rætt er við hann í áðurnefndri tilkynningu frá mótshöldurum. Þar segir:

Honum finnst stemningin skemmtilegust og er „spenntastur fyrir að spila fótbolta með vinum sínum.“ Honum er minnisstætt þegar síðustu mínútur eins leiks Gróttu voru eftir, staðan var jöfn og einn liðsfélagi hans fékk horn og skoraði þannig að þeir unnu leikinn. Það er aldrei að vita nema þeir endurtaki leikinn aftur í ár og komi heim með enn fleiri sigra undir beltinu.

Fríður, móðir hans, segir að N1 mótið sé skemmtileg upplifun fyrir krakkana því „þeir fá tækifæri til að uppskera eftir veturinn og keppa.“ Þá er ekki síður gaman að fara sem foreldri því þau fá að fylgjast með og hitta fleiri foreldra sem standa þétt að baki sínum börnum.

Ekki þarf að vera í A-liðinu til að ná langt

Haukur Brink, leikmaður Stjörnunnar í Bestu deildinni, tók þátt í mótinu sem barn. Liðinu hans gekk ekki vel og tapaði öllum leikjunum sínum. Samt eru minningarnar frá ferðinni góðar. Einnig er rætt við hann í áðurnefndri tilkynningu:

„Ég fattaði hvað maður var heppinn að fá að fara í þessa ferð með vinum sínum,“ segir Haukur.

Hann segir mótið einnig hafa kennt sér að úrslitin séu ekki alltaf það mikilvægasta.

„Maður lærir að vinna og maður lærir líka að tapa. En það sem situr helst eftir er tíminn með vinunum. Ég myndi ráðleggja öllum sem eru að fara núna að njóta stundarinnar, því svona tækifæri koma ekki oft.“

Haukur var ekki í A-liði þegar hann tók þátt í mótinu en hefur síðan náð alla leið í efstu deild. Ljóst er að saga leikmanns á einum tímapunkti segir lítið um hvert leiðin getur legið.

Annar sonur Eiðs Smára, Andri Lúkas, tók þátt í N1 mótinu árið 2014. Hér er hann með boltann andartaki áður en hann skoraði fyrir HK gegn Aftureldingu. Andri á að baki 39 A-landsleiki fyrir Ísland og er leikmaður Blackburn Rovers á Englandi. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Kynslóðir snúa aftur

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, tók þátt í Esso-mótinu, eins og það hét þá, með ÍR árin 1990 og 1991. Þá sendi félagið aðeins tvö lið til leiks. Í dag snýr hann aftur á mótið sem foreldri.

„Það er alltaf jafn gaman að koma aftur,“ segir Halldór Benjamín í tilkynningunni sem áður var vitnað til. „Þannig hefur N1 mótið tengt saman kynslóðir. Börn sem eitt sinn komu norður með liðinu sínu snúa aftur mörgum árum síðar sem foreldrar, þjálfarar, sjálfboðaliðar eða stuðningsfólk,“ segir þar.

Þórsarinn Aron Kristófer Lárusson á N1 mótinu 2009. Hann leikur nú með HK. Faðir hans, Lárus Orri, þjálfar lið ÍA sem kunnugt er. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mótið stærra en fótboltinn

Í fjóra áratugi hefur mótið verið vettvangur þar sem börn fá að vaxa, bæði innan vallar og utan, eins og það er orðað í tilkynningu mótshaldara sem áður var getið. Þau læri að vinna saman, treysta hvert öðru, sýna mótherjanum virðingu og að standa aftur upp þegar ekki gengur sem skyldi.

„Við erum ótrúlega stolt af því að N1 mótið skuli nú vera haldið í fertugasta sinn,” segir Magnús Hafliðason, forstjóri N1. „Í gegnum árin hafa þúsundir barna komið hingað til að spila fótbolta, en það sem þau taka með sér heim er oft miklu stærra en úrslitin sjálf. Þau eignast vini, verða hluti af liðsheild og safna minningum sem geta fylgt þeim alla ævi. “

Magnús segir mótið einnig sýna hversu mikilvægt öflugt íþróttastarf er fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið allt.

„Íþróttir skapa börnum öruggan vettvang, félagsskap og tækifæri til að þroskast. Þær kenna samvinnu, seiglu og virðingu. Þess vegna skiptir máli að atvinnulífið standi með íþrótta- og æskulýðsstarfi og hjálpi til við að skapa þessi tækifæri.“

Eiður Smári Guðjohnsen, þá nýorðinn Evrópumeistari með Barcelona, fylgdist með N1 mótinu árið 2009 þegar Sveinn Aron sonur hans tók þátt. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Heill bær tekur þátt

Hátt í 2000 strákar og fjölskyldur þeirra koma til Akureyrar þessa fyrstu helgi í júlí „og eru áhrifin sýnileg um allan bæ. Veitingastaðir, verslanir, gististaðir og fjölbreyttir þjónustuaðilar finna fyrir auknum umsvifum og margir gestir nýta ferðina til að kynnast Akureyri og Norðurlandi betur,“ segja mótshaldarar í tilkynningunni. 

„N1 mótið er því einnig hluti af sumrinu á Akureyri, atvinnulífinu og samfélaginu sem tekur á móti gestum alls staðar að af landinu,“ segir þar. „Að baki mótinu stendur jafnframt stór hópur starfsfólks, foreldra, þjálfara og sjálfboðaliða sem leggur ómælda vinnu í að gera upplifun þátttakenda sem besta.“

„Það er ómögulegt að halda mót af þessari stærð án fólksins sem gefur tíma sinn, orkuna og hjartað í verkefnið,“ segir Magnús Hafliðason forstjóri N1. „Þetta er sameiginlegt afrek allra sem hafa komið að mótinu í gegnum tíðina.“

Heimasíða N1 mótsins