Fara í efni
Þór

Björn Sveinsson heiðursfélagi í Þór

Björn Halldór Sveinsson, nýr heiðursfélagi í Þór, og Nói Björnsson formaður félagsins í afmælishófinu í Hamri á laugardaginn. Mynd: Ármann Hinrik

Björn Halldór Sveinsson var gerður að heiðursfélaga í Íþróttafélaginu Þór á laugardaginn, þegar 111 ára afmæli félagsins var fagnað í félagsheimilinu Hamri. Björn er „körfuboltamaður og sjálfboðaliði en umfram allt gegnheill Þórsari,“ sagði Nói Björnsson, formaður Þórs, þegar hann tilkynnti um kjör aðalstjórnar félagsins.

Björn Halldór lék knattspyrnu með Þór í gegnum alla yngri flokkana, „og var liðtækur varnarmaður, harður, fylginn sér og duglegur en umfram allt einstaklega góður félagi,“ sagði Nói meðal annars. „Á einhverjum tímapunkti á ungdómsárunum skipti Bjössi um íþrótt, og upp frá því átti körfuknattleikur hug hans allan og lék hann lengi körfuknattleik með Þór og var einn af burðarásum liðsins í áraraðir.“

Eftir að leikmannaferlinum lauk hefur Bjössi verið einn öflugasti sjálfboðaliði, sem körfuknattleiksdeild Þórs hefur innan sinna raða „í víðustu merkingu þess orðs,“ sagði Nói. „Um árabil var hann einn öflugasti dómari, sem deildin hefur haft aðgang að, dæmdi leiki yngri flokka, sem og leiki meistaraflokks kvenna m.a. á Íslandsmótum og æfingaleiki meistaraflokks karla. Svo verður ekki hægt að sleppa að nefna að foreldrahlutverkið sem Bjössi hefur ræktað við stuðning barna sinna í körfuknattleiknum er aðdáunarvert og eftir er tekið og þar eins og víða í störfum hans Bjössa er fagmennskan allsráðandi og öðrum foreldrum til eftirbreytni.“

Nói hélt áfram: „Björn er einn þeirra fjölmörgu sem er „maðurinn á bakvið tjöldin“, sá sem alltaf er hægt að treysta á og kalla til ef einhver verkefni þarf að vinna.“ Formaðurinn bætti við að Bjössi væri, eins og gjarnan væri sagt um skátana, ávallt viðbúinn. Hann væri „afar traustur og sannur Þórsari og félagið væri miklu fátækara án hans.“

  • Meira hér á heimasíðu Þórs:

Björn Halldór Sveinsson heiðursfélagi Þórs