Fara í efni
Þór

Allir vonsviknir með jafntefli – MYNDIR

Víti! KA-mennirnir Birgir Baldvinsson og Jóan Síum Edmundsson vekja athygli dómarans á því að KA átti að fá víti á 60. mínútu. Bjarni Aðalsteinsson skaut að marki og boltinn fór í hönd Samúels Kára Friðjónssonar; svipurinn á Þorra Mar og Samúel Kára segir eiginlega allt sem segja þarf ... Myndir: Ármann Hinrik

Lið KA og Stjörnunnar fengu sitt hvort stigið í gær þegar þau skildu jöfn, 1:1, á Greifavellinum sunnan við KA-heimilið í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. KA-menn gengu vonsviknir af velli eftir að hafa haft mikla yfirburði í seinni hálfleik og gera má ráð fyrir að gestirnir hafi verið súrir líka því þeir réðu lofum og lögum í fyrri hálfleik.

Þegar einum leik er ólokið í 10. umferð, viðureign Vals og Fram í kvöld, er KA í níunda sæti deildarinnar með 12 stig.

Leikur KA og Stjörnunnar var óvenju kaflaskiptur; KA fékk dauðafæri þegar aðeins tvær mínútur voru liðnar af leiknum en eftir það tóku gestirnir við stjórninni, voru meira og minna með boltann næsta hálftímann, léku honum vel á milli sín og KA-strákarnir áttu ekki annarra kosta völ en að halda sig í varnarstellingum. Stjörnumenn voru léttleikandi, komust hvað eftir annað ótrúlega auðveldlega framhjá heimamönnum og náðu forystu á 35. mínútu. Mark hafi þá legið í loftinu lengi.

Rautt – Ekki víti, ekki rautt

Þremur og hálfri mínútu eftir markið var Alex Þór Haukssyni, leikmanni Stjörnunnar, gert að yfirgefa völlinn. Hann gerði tilraun til að ná boltanum um leið og Tönning markvörður KA og þeir lentu saman þrír, Alex, Tönning og Ívar Örn fyrirliði KA. Elías Ingi dómari gaf sér góðan tíma til að íhuga stöðuna, seildist á endanum í rassvasann og sótti rauða spjaldið og sýndi Alex Þór. Það virtist satt að segja heldur strangur úrskurður en Stjörnumenn voru einum færri tæplega 10 síðustu mínútur fyrri hálfleiksins og allan þann seinni.

KA-menn komu tvíefldir til seinni hálfleiks sem var nánast spegilmynd þess fyrri. KA-menn höfðu mikla yfirburði, þeir jöfnuðu þegar nokkrar mínútur voru eftir en höfðu verið nálægt því að skora nokkrum sinnum áður en það tókst. Og þeir áttu að fá vítaspyrnu þegar korter var liðið af seinni hálfleik; leikmaður Stjörnunnar viðurkenndi það í viðtali eftir leik en dómarinn sá ekki þegar þrumuskot small í hendi leikmannsins. Þá var hálftími eftir, Stjörnumaðurinn hefði að öllum líkindum átt skilið rautt spjald og líkurnar á sigri KA hefðu vitaskuld aukist gegn níu leikmönnum Stjörnunnar. 
_ _ _

DAUÐAFÆRI KA
Nákvæmlega tvær mínútur voru liðnar þegar KA fékk dauðafæri. Bakvörðurinn Guðjón Ernir sendi boltann fyrir markið utan af hægri kanti, Ásgeir Sigurgeirsson skallaði af öllu afli af markteig en illu heilli fyrri KA-menn fór boltinn beint á Árna Snæ markvörð.


_ _ _

STJARNAN TÓK VÖLDIN
Fljótlega eftir hið góða færi KA tóku Stjörnumenn öll völd á vellinum. Leikurinn var aðeins átta mínútna gamall þegar þeir fengu dauðafæri en Hans Viktor bjargaði á línu, hálfri annarri mínútu síðar varði Tönning markvörður mjög vel frá Benedikt Warén í horn og skömmu síðar var Haukur Brink í frábæru færi en voru mislagðir fætur og ekkert varð úr. Þar munaði sannarlega mjóu.


_ _ _

„KA-REGNHLÍFAR TIL SÖLU“
Almættinu virtist ekki lítast á blikuna og þegar korter var frá því dómarinn flautaði til leiks fór að rigna hressilega. Það breytti reyndar engu en Ágúst Stefánsson vallarþulur var fljótur að sjá viðskiptatækifæri: „Ég minni á að í afgreiðslunni eru fallegar KA-regnhlífar til sölu!“ tilkynnti  hann í hátalarakerfið.


_ _ _

STJARNAN SKORAR
Eftir að hafa þjarmað að KA nánast frá byrjun náði Stjarnan forystu á 35. mín. Eftir lenga sendingu fram vinstri kantinn þar sem tveir varnarmenn KA stukku upp með Stjörnumanni hafði einn gestanna rými til athafna sig, sendi boltann til hægri og annar enn lengra, til Þorra Mars, fyrrverandi leikmanns KA. Hann komst auðveldlega framhjá Hallgrími Mar og lék upp að endamörkum. Þorri sendi boltann fyrir markið þar sem Benedikt Warén stökk upp á milli tveggja varnarmanna á markteignum og skallaði í netið. Glæsilega gert hjá Stjörnumönnum en að sama skapi illa varist.


_ _ _

ALEX ÞÓR REKINN ÚTAF
Þremur og hálfri mínútu eftir markið var Alex Þór Haukssyni, leikmanni Stjörnunnar, gert að yfirgefa völlinn sem fyrr segir. Það virtist satt að segja heldur strangur úrskurður en Stjörnumenn voru einum færri tæplega 10 síðustu mínútur fyrri hálfleiksins og allan þann seinni.


_ _ _

KA ÞJARMAR AÐ GESTUNUM
KA-strákarnir höfðu yfirburði í seinni hálfleik, sóttu af miklum krafti og fengu góð tækifæri til að skora. Bjarni Aðalsteinsson skaut framhjá á fyrstu mínútu hálfleiksins, Jakob Snær skaut í varnarmann og Árni Snær í Stjörnumarkinu varði snilldarlega fastan skalla Hallgríms Mars af stuttu færi – á meðfylgjandi mynd.


_ _ _

KA ÁTTI AÐ FÁ VÍTI
Þegar korter var liðið af seinni hálfleik, og því hálftími eftir, átti KA að fá víti. Bjarni Aðalsteinsson þrumaði að marki og boltinn small í hönd Samúels Kára Friðjónssonar en því miður fyrir KA-menn sá dómarinn það ekki og dæmdi horn. Stjörnumaðurinn var hins ófeiminn eftir leikinn að segja hvers kyns var. „Þetta er bara víti, það vissu það allir. Ég var bara klárlega heppinn,“ sagði Samúel Kári við fótbolta.net.


_ _ _

ÓBREYTT ÁSTAND
Þung sókn KA-manna hélt áfram en annað hvort sá Árni Snær markvörður eða boltinn fór yfir eða framhjá markinu. Næst komst KA því að skora þegar glæsilegt skot Hallgríms Mars rétt utan vítateigs small í samskeytunum.


_ _ _

VALDIMAR OG REGNBOGINN
Einhvern tíma var spurt: Hvað er við enda regnbogans? Komist menn þangað ku vera hægt að óska sér og etv tókst einhverjum það í gær, þegar þessi fallegi regnbogi birtist á Brekkunni. Þá voru fjórar mínútur eftir skv. leikklukkunni en hátt í korter í raun. Sá hefur vitaskuld óskað sér þess að KA myndi skora og það helst tvö mörk og hugsanlega að Hallgrímur KA-þjálfari skipti hinum unga Valdimar Loga Sævarssyni inná. Það gerði þjálfarinn altjent og ekki leið á löngu þar til Valdimar átti gott skot að marki sem Árni Snær varði aftur fyrir endalínu ...


_ _ _

LANGÞRÁÐ MARK
KA fékk sem sagt hornspyrnu. Hallgrímur Mar fékk boltann og sendi fyrir markið, KA-mennirnir Hans Viktor og Ívar Örn stukku upp með markverðinum, hann náði ekki að halda boltanum sem datt niður í markteiginn og þar beið Ásgeir Sigurgeirsson ekki boðanna heldur þrumaði þeim hnöttótta í  netmösvkana. Langþráð mark og mikilvægt. 

Leikskýrslan

Staðan í deildinni