Fara í efni
Sverrir Páll

Opnað fyrir skráningu í Vísindaskólann

Forseti Íslands Halla Tómasdóttir var viðstödd útskriftarhátíð Vísindaskóla unga fólksins á síðasta ári.

Opnað verður fyrir umsóknir í Vísindaskóla unga fólksins strax eftir páska – skólann sem „útskrifar sérfræðinga í sólmyrkva og lífi á Norðurslóðum,“ eins og það er orðað í tilkynningu. Að þessu sinni verður skólinn dagana 22. til 26. júní í Háskólanum á Akureyri.

Þetta er í 12. skipti sem skólinn er starfræktur fyrir börn á aldrinum 11-13 ára. Á síðasta ári hlaut skólinn viðurkenningu Rannís fyrir framúrskarandi vísindamiðlun og segja aðstandendur skólans viðurkenninguna mikilvæga staðfestingu á því að starfsemin skipti máli fyrir unga fólkið á svæðinu.

„Sem fyrr verður boðið upp á ný viðfangsefni, þannig að það sé tryggt að börn geti komið ár eftir ár án þess að fræðast um það sama. Meðal þess sem verður í brennidepli að þessu sinni er lífið á Norðurslóðum, sólmyrkvi og náttúruvá, jafnréttismál, ferlimál, rekstur bæjarfélags, heilsa, ræktun, nægjusemi og endurvinnsla,“ segir í tilkynningu frá skólanum.

Sigrún Stefánsdóttir og Dana Rán Jónsdóttir halda utan um starfið í Vísindaskólanum.

„Við reynum að velja viðfangsefni sem eru í takt við það sem er að gerast í þjóðfélaginu. Það eru bæjar- og sveitastjórnarkosningar í ár og þess vegna munu nemendur fara ofan í saumana á rekstri bæjarfélags. Við spyrjum líka af hverju sólin verður svört en það tengist sólmyrkvanum margumtalaða í ágúst. Við munum því útskrifa sérfræðinga á þessu sviði í vor“, er haft eftir Sigrúnu Stefánsdóttur og Dönu Rán Jónsdóttur í tilkynningunni, en þær halda utan um starfið í Vísindaskólanum.

„Skólinn getur tekið á móti 80-85 börnum og fyrstir koma fyrstir fá. Skólinn er að stórum hluta fjármagnaður með styrkjum frá fyrirtækjum og félögum af svæðinu,“ segir í tilkynningunni.

Þátttaka í skólanum er ekki bundin búsetu. Þátttökugjald er 35.000 krónur og er hægt að nota frístundastyrk til þess að greiða gjaldið.

  • Hægt er að fá frekari upplýsingar á netfanginu visindaskóli@unak.is eða með því að hringja í Dönu í síma 460-8906.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00