Fara í efni
Sverrir Páll

Nemendur VMA sýna í Listasafninu

Útskriftarsýning nemenda listnáms- og hönnunarbrautar Verkmenntaskólans (VMA) hefst í Listasafninu á Akureyri á laugardaginn og stendur í rúma viku, til sunnudags 17. maí.

Sýningar á lokaverkefnum nemenda hafa lengi verið fastur liður í náminu á listnáms- og hönnunarbraut Verkmenntaskólans á Akureyri og er þetta tíunda árið sem sýning er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri, að því er segir í tilkynningu frá safninu.

„Samhliða öðru námi til stúdentsprófs fá nemendur eina önn til að vinna lokaverkefni á sínu sérsviði. Nemendur vinna sjálfstætt að því að útfæra eigin hugmyndir í þá miðla sem þau kjósa, allt frá fyrstu kveikju að lokaútfærslu. Þau þróa og móta verk sitt með rannsóknar- og tilraunavinnu og eiga í stöðugu samtali og samvinnu við leiðsagnarkennara og aðra nemendur í sköpunarferlinu. Þau gera grein fyrir þeim ákvörðunum sem eru teknar við þróun verksins og í undirbúningi sýningarinnar með tilliti til faglegrar þekkingar. Þetta er síðasta verkefni nemenda á brautinni áður en þau feta sig út í hinn stóra heim sjónlista.“

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00