Fara í efni
Sverrir Páll

Hlauparar á öllum aldri á ferðinni

Myndir: Hilmar Friðjónsson

Fjallahlaupið Súlur Vertical fer fram á Akureyri á morgun þar sem fullorðnir hlaupa ýmist 19, 29, 43 eða 100 kílómetra. Eins og skemmtileg hefð er fyrir hlaupa börn í nafni Súlna Vertical daginn áður; krakkahlaupið var því síðdegis í dag í Kjarnaskógi og þar spretti fjöldi barna úr spori. Hilmar Friðjónsson var á staðnum og tók þessar skemmtilegu myndir.

Þótt fjallahlaupið verði þreytt á morgun áttu fyrstu keppendur að leggja af stað klukkan níu í kvöld frá Goðafossi; fyrri ráshópur þeirra sem hlaupa 100 kílómetra! Seinni hópurinn, þeir hlauparar sem eiga mun betri tíma en hinir, verður ræstur klukkan 2 í nótt.

Keppendur í styttri vegalengdunum eru ræstir á mismunandi tímum í Kjarnaskógi í fyrramálið. Þeir fyrstu í öllum vegalengdum ljúka keppni í göngugötunni um hádegi en fólk mun síðan streyma í mark fram eftir degi.

Fleiri myndir frá krakkahlaupinu verða birtar síðar

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00